Úrval - 01.12.1956, Blaðsíða 2
TIL LESENDA.
Það má segja um efnisyfirlit
það, sem birtist aftast í þessu
hefti, að seint koma súmir, en
koma þ<5. Þegar Úrval hóf göngu
sína fyrir nærri fimmtán árum,
ríkti i rauninni ekki mikil bjart-
sýni um framtíð þess rr.eðal
þeirra, sem að því stóðu, eink-
um vegna þess að útgáfa svona
tímarits var alger nýjung hér á
landi. 1 lok fyrsta árgangs var
því ekkert hugsað um að taka
saman efnisyfirlit. Þegár síðasta
hefti annars árgangs var í undir-
búningi, kom efnisyfirlit til tals,
en ekkert varð úr framkvæmd,
liklega mest vegna þess, að ekk-
ert efnisyfirlit var gert yfir 1.
árgang. Þannig leið svo hvert ár-
ið á fætur öðru án þess nokk-
urt efnisyfirlit væri tekið saman.
Alltaf voru þó öðru hvoru að ber-
ast kvartanir frá lesendum sem
létu binda Úrval inn. Þeir töldu
það galla, að hafa ekki efnis-
yfirlit í lok hvers árgangs. Þótt
nokkur vilji væri til að taka tillit
til þessara kvartana, varð aldrei
úr framkvæmd, enda varð hún
erfiðari með hverju árinu, sem
leið. En á öndverðu siðasta ári,
þegar Úrval bað Magnús Ásgeirs-
son skáld levfis að mega birta
þýðingu hans á Vögguþulu eftir
Garcia Lorca, mæltist hann ein-
dregið til þess, að í lok fimmt-
ánda árgangs yrði gerð gangskör
að þvi að taka saman efnisyfirlit
yfir alla árgangana. Ekki var
hægt að skella skolleyrunum við
tilmælum jafnbókfróðs manns og
Magnúsar — og eins og gefur
að líta, hefur hér nú loks verið
bætt fyrir fimmtán ára van-
rækslu. En svo mikið reyndist
þetta efnisyfirlit að vöxtum, að
ekki voru nein tök á að birta
það allt í einu, og kemur því
helmingurinn nú, en síðari helm-
ingurinn mun koma í lok næsta
árs. úm flokkinn er ekki ástæða
til að fjölyrða. Þótt tvímælis orki
um ýmsar greinar hvar þær skuli
flokkast, þótti flokkunin sjálf-
sögð, því að hún auðveldar mönn-
um mjög notkun efnisyfirlitsins.
Vegna efniryfirlitsins er þetta
hefti 16 síðum stærra en venju-
lega, og er þvi engu efni fórnað
þess vegna.
Það er góð jólagjöf, að gefa
árgang næsta árs af Úrvali. Hún
minnir á sig allt árið. Á afgreiðsl-
unni geta menn fengið smekkleg
gjafakort. 1 Reykjavík geta menn
fengið þau send heim, ef þeir óska
þess. Einkum skal á það bent,
að fróðleiksfúsir unglingar munu
hafa bæði gagn og gaman af
slikri jólagjöf.
Að endingu vill Úrval svo óska
lesendum sínum gleðilegra jóla og
farsæls komandi árs og þakka
þeim góð viðskipti á liðnu ári.