Úrval - 01.12.1956, Side 16

Úrval - 01.12.1956, Side 16
14 ÚRVAL skapi sínu á börnunum. Konan, sem á uppvaxtarárunum hefur vanizt á undirgefni og uppgötv- ar skyndilega, að til þess er ætlast að hún hafi sjálfstæðar skoðanir eða taki mikilvægar á- kvarðanir, verður óróleg og veit ekki hvernig hún á að haga sér við þessar nýju aðstæður. Á- stand eins og þetta getur því skapað djúprættar andstæður milli hjóna og unnið tjón á samheldni og eindrægni innan f jölskyldunnar. Atvinna giftrar konu utan heimilisins eykur sjálfstraust og þroskar sjálfstæðisvitund henn- ar. Hún verður ekki efnahags- lega háð manninum á sama hátt og sú kona, sem vinnur heima. Þessi þróun hefur í mörgum til- fellum reynzt hjónabandinu á- vinningur og haft góð áhrif á sambúð hjónanna. En æðioft hafa kynni eiginkonunnar af starfsfélögum og tækifærin sem henni bjóðast til að bera saman hjónaband sitt og annarra, orð- ið hjónabandinu þung í skauti. Margar konur, sem lifa í van- sælu hjónabandi, hafa með at- vinnu utan heimilis öðlast tæki- færi til að sjá fyrir sér sjálfar, og opnast þannig leið til skiln- aðar. Konur eru ekki jafnnauð- beygðar og áður til að lifa á- fram í vansælu hjónabandi af efnahagsástæðum einum saman. Sjálfstæð atvinna eiginkonu hefur á annan hátt valdið erf- iðleikum í hjónabandi. Kynni konunnar af starfsbræðrum og aðstæðum ólíkum þeim, sem hún býr við, geta hæglega vakið hjá henni hugmyndir um það, að annar maður, annað hjónaband og breyttar aðstæður myndu geta fært henni meiri ham- ingju en hún nýtur í núverandi hjónabandi sínu. Það er greini- legt samband milli f jölda hjóna. skilnaða og fjölda þeirra eigin- kvenna, sem vinna utan heim- ilis. 1 Stokkhólmi, þar sem mik- ill fjöldi giftra kvenna vinnur úti, voru hjónaskilnaðir 240 á hverja 100.000 ibúa, en í sveit- um landsins aðeins 30—40. Og af þeim konum, sem leita ráða hjá leiðbeiningarstofnunum í hjónabandsmálum, er yfirgnæf- andi meirihlutinn starfandi utan heimilis. Konan, sem vinnur úti, á einnig við annað vandamál að etja: hvernig hún geti rækt starf sitt og jafnframt annast heimili og börn. Hún getur kannski ekki rækt þessi störf viðunandi, eða finnst minnsta kosti að hún geti það ekki, og sú hugsun lætur hana ekki í friði, að hún vanræki annað hvort. Fyrir kemur, að konur sem vinna utan heimilis þrá svo ákaft að fá að helga sig ein- ungis heimilinu, að þær hætta að vinna úti. En ófáar þessara kvenna eiga örðugt með að sætta sig við breytinguna og una heima. Eins og nú er mál- um komið á konan sem vinnur heima einnig við sína erfiðleika
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.