Úrval - 01.12.1956, Side 36

Úrval - 01.12.1956, Side 36
34 URVAL sandi á sjávarströnd. Nafla- strengurinn, sem bundið hafði verið fyrir, hékk niður með annarri síðunni. Dimmbláu augun voru skír. En meðan hjúkrunarkonan var að horfa á hann varð honum skyndilega erfitt um andardrátt og hann varð svarblár í framan. „Það verður að sjúga úr hon- um,“ kallaði hún. „Láttu mig fá sogpípuna." Hjúkrunarnemi kom með þunna glerkúlu með langa glerpípu út úr öðrum endanum en gúmmíslöngu úr hinum. Carey fór með slönguna gegnum loftgat á vermikassan- um og smeygði henni með lipr- um fingrum upp í barnið. Síð- an stakk hún glerpípunni upp í sig og saug varlega að sér. Sogkrafturinn dró slímið, sem var að kæfa barnið, úr koki þess og upp í glerkúluna. Hjúkrunarneminn fylgdist af athygli með þessu. Þegar Carey hafði fullvissað sig um, að hún hefði hreinsað kok barnsinö, fór hún með tækið í vaskinn og þvoði sér um hendurnar . . . Róbert litli var f jögra stunda gamall þegar Carey tók eftir blóðdropa á naflastreng hans. „Ég verð að binda betur fyrir naflastrenginn, annars getur honum blætt út,“ sagði hún við nemann. Hún tók dauðhreinsað- an þráð úr skápnum, fór með hendurnar gegnum loftgötin og batt þráðinn um naflastrenginn. En naflastrengurinn, sem ekki hafði enn þornað, en var eins og þykkt hlaup, þoldi ekki hnútinn og það fór að blæða með honum. Neminn horfði kvíðafull á blóð- ið, en Carey náði sér í annan þráð. Til allrar hamingju var nægilega mikið eftir af nafla- strengnum til þess að hægt væri áð binda aftur, og í það skipti hélt hann. Róbert litli var 22 stunda þegar Carey kom á vakt morg- uninn eftir. Hún var snemma á ferðinni. Hún flýtti sér að vermikassanum hans, og henni létti þegar hún sá að allt var með felldu. „Ég gat varla beðið eftir því að sjá hvort hann væri hér ennþá,“ sagði hún við nem- ann. „Með hverri stund sem hann lifir vaxa líkurnar til þess að hann hafi það af“. „Hvenær byrjum við að gefa honum?“ spurði neminn. „Ekki fyrr en hann er fjögra sólarhringa,“ sagði Carey. „Þá geta erfiðleikarnir byrjað fyrir alvöru, því að aldrei er að vita hvernig þeim verður um. Mag- inn fyllist og þrýstir á lungun. Það getur haft áhrif á öndun- ina eða valdið slímmyndun, sem þau geta ekki losnað við. Það er mikið lán, að þau skuli fæðast með nægilegan varaforða af næringu og vatni til þess að endast þeim þennan tíma“. Dr. Starr, hvatleg kona, kom inn. „Jæja, trítill”, sagði hún og horfði drykklanga stund á Ró- bert. „Eg veit ekki, Carey. Ég held það sé of snemmt að hringja bjöllum strax. En hann
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.