Úrval - 01.12.1956, Qupperneq 77
MÆJÐRAVEUDX Á INDLANDí 75
hátíðum. Tveir mæðraveldis-
þjóðflokkar eru í Assam: Garu
og Kasi. Garu-menn hafa mjög
lítið samband við umheiminn og
hafa því varðveitt vei siði sína
og þjóðhætti. Þeir trúa á stokka
og steina og stunda jarðyrkju.
1 desember fella þeir trén í
frumskóginum. f marz er jörð-
in orðin svo þurr, að þeir geta
brennt trjástubba og kvisti. Svo
kemur regntíminn, askan sígur
niður í jörðina og er sem áburð-
ur fyrir hana. Þá er tími til að
sá hrísgriónum og öðrum mat-
jurtum. í september er upp-
skeran. Eftir tólf ár er frum-
skógurinn aftur orðinn fullvax-
inn og þá er hann felldur að
nýju. Þannig endurtekur sagan
sig. Fæðingartalan í Assam er
há, en þó hefur fólksfjölgunin
til skamms tíma verið lítil sem
engin vegna þess hve barna-
dauði var mikill. En síðan ný-
tízku heilsuvernd var upp tekin,
svo sem barátta gegn malaríu,
bólusetning o. fl., hefur fólkinu
fjölgað það mikið að jarðnæði
hrekkur ekki lengur til og hið
aldagamla ræktunarfyrirkomu-
lag er tekið að raskast. Það
verður að höggva frumskóginn
að nýju áður en hann hefur náð
fullum vexti, og er þannig hætta
á að hann eyðist, ef ekki
verða gerðar einhverjar gagn-
ráðstafanir. Ef frá er tal-
ið þetta vandamál, sem fæst-
ir landsmenn hafa enn gert
sér ljóst, lifa Garumenn óvenju.
árekstrarlausu og hamingju-
sömu iífi. Eignarréttur er emt
óþekktur hjá þeim. Jörðin er
sameign, þ. e. a. s. hún er ao
nafninu til í eigu konu, eigin-
konu sveitarhöfðingjans, en 'i
raun og veru er hún almenn-
ingseign. Allir fá jafnmikið land
til ræktunar. Fátækt og ríki-
dæmi er ekki til. og því heldur
ekki sú óánægja og metingur,
sem fylgir efnahagslegum ó.
jöfnuði. Ailir hafa sömu tæki-
færi til að taka. þátt í hátíða-
höldum og allar stúlkur hafa
sömu tækifærin til að ná sér I
gott gjaforð. Enda þótt for-
eldrarnir velji börnum sínum
maka, ræður unga fólkið í
rauninni miklu um valið, því að
það umgengst frjálst og 6-
þvingað hvað annað í starfi og
leik öll uppvaxtarárin. Á hinni
miklu árlegu uppskeruhátíð rík.
ir fullt og óskorað frelsi í kyn-
lífi giftra jafnt sem ógiftra, en
þess á milli lifir fóikið við ein-
kvæni og hjón eru hvort öðru
trú.
Hjá Kasimönnum, þar sem
einnig er mæðraveldi, er yngsta
dóttirin alltaf einkaerfingi. Hún
tekur við jörðinni og flytur í
fjölskylduhúsið þegar foreldrai
hennar eru dánir. Eldri systui
hennar eru landlausar. Þegar
þær giftast, flytja þær með
mönnum sínum í lítil afhýsi
áföst við fjölskylduhúsið og
verða síðan að reisa sér nýbýli
og taka óbrotið land til rækt-
unar.
Hjá Garumönnum gengur atf -