Úrval - 01.12.1956, Page 103

Úrval - 01.12.1956, Page 103
ÁSTRlÐA 101 hennar, og hún lét sem ekkert hefði gerzt. Hann beið eftir merki frá henni, en stúlkan var sannkallaður meistari í blekk- ingalist. Hún deplaði ekki einu sinni augunum, þó að hann ein- blíndi á hana. Honum datt í hug, að hún væri ef til vill svona varkár, af því að móðirin tor- tryggði hana. Þögn hennar hlaut að stafa af einhverri gildri ástæðu. Tvær vikur liðu, án þess að nokkuð bæri til tíðinda. Yuan sagði Yang ekki frá ævintýrinu, og þegar vinur hans bað hann að vera nótt hjá sér, færðist hann ávallt undan því, af ótta við að stúlkan kynni að koma meðan hann væri í burtu. Hann gat ekki slitið sig frá klaustr- inu. Hann orti langt kvæði um hinn dularfulla ástarfund sinn með álfameynni og lýsti sælu sinni og þrá. Eitt kvöld, þegar komið var fram yfir miðnætti, heyrði hann marr í hurðinni á ganginum. Hann flýtti sér að opna dyrnar og sá að Rósa beið fyrir utan. Hún sagði honum að unga stúlk- an hefði látið smíða lykil að lásnum, svo að þau gætu hitzt í vesturherberginu. Hún hefði komið því svo fyrir, að hengi- lásinn virtist vera lokaður, en hann gæti opnað hann með höndunum og komizt þannig skemmstu leið til herbergisins. Þó að Yuan væri naumast með sjálfum sér af fögnuði, gat hann ekki annað en dáðst að dirfsku og slóttugheitum ástmeyjar sinnar. Eftir 'þetta kom Inging til fundar við hann í vesturher- berginu aðra hvora nótt, eða eins oft og hún gat með nokkru móti komið því við, en gæti hún það ekki, sendi hún honum ávallt boð um það með stúlk- unni. Hún kom næstum alltaf skömmu eftir miðnætti og hvarf á brott í dögun. Yuan var svo hamingjusam- ur að hann vissi hvorki í þenn- an heim né annan. Stúlkan unni honum hugástum, og þau hétu því bæði, að reynast hvort öðru trú, á hverju sem gengi. Það var ótrúlegt, að svo lítill líkami skyldi geta búið yfir svo mikilli ást — þau hvíldu saman í myrkrinu og töluðu í hálfum hljóðum, því að það var hætta á að einhver kynni að koma að þeim óvörum, enda þótt Yuan væri stöðugt 4 varðbergi. Ing- ing virtist ekki blygðast sín hót fyrir framkomu sína. Þegar hann spurði hana hversvegna hún hegðaði sér svona, kyssti hún hann aðeins og hvíslaði: „Ég get ekki gert að því, ég elska þig svo heitt.“ „En ef móðir þín kæmist að þessu?“ spurði hann einu sinni. ,,Þá verður hún að gera þig að tengdasyni sínum“, sagði Inging brosandi. „Ég tala við móður þína þeg- ar þar að kemur“, sagði Yuan, og Inging fór ekki lengra út í þá sálma. "
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.