Úrval - 01.12.1956, Page 111
ÁSTRÍÐA
109
við stúlku af tignum ættum,
Wei að nafni. Yang fylltist við-
bjóði og hélt aftur heim til
Pucheng. Hann vissi ekki hvern-
ig hann átti að segja stúlkunni
þessi tíðindi. Hann óttaðist að
hún mundi taka það nærri sér.
Hann sagði móðurinni fréttina
fyrst.
,,Jæja“, sagði Inging, þegar
þau hittust. „Ertu með bréf til
mín ?“
Yang þagði. Hann gat ekki
komið orðum að því sem hann
ætlaði að segja og hann sá
svipbreytinguna á andliti stúlk-
unnar. Á þessu augnabliki urðu
djúp og dökk augu Inging skær
og hvöss, eins og augu þeirrar
konu, sem skilur ekki einungis
sínar eigin aðstæður, heldur
sjálft lífið og eilífðina; eða eins
og sú, sem hefur verið yfirgef-
in, ekki af einum unnusta, held-
ur tíu. Augu hennar loguðu, og
Yang varð ósjálfrátt niðurlút-
ur. „Jæja“, sagði hann að lok-
um, „Kvæðið, sem hann sendi
þér, var kveðjan hans.“
Inging stóð andartak þögul
og hreyfingaidaus. Yang óttað-
ist að hún mundi hníga í ómeg-
in. En það var bæði stolt og
harka í orðum hennar, þegar
hún sagði. „Þá verður svo að
vera!“ Hún sneri sér snöggt við
og ætlaði út úr herberginu. Þeg-
ar hún kom að dyrunum, rak
hún upp tryllingslegan hlátur.
Móðirin þaut út á eftir henni og
Yang heyrði tryllingshláturinn
lengi á eftir.
Yang var mjög áhyggjufullur,
en daginn eftir sagði móðirin
honum, að stúlkunni liði vel,
hún væri búin að ná sér eftir
taugaáfallið og hún væri nú
stolt og þögul eins og drottning.
Hún hefði fallist á að giftast
frænda sínum, Cheng að nafni,
sem hefði beðið hennar fyrir
nokkru. Vorið eftir giftust þau
Inging og Cheng.
Dag nokkurn kom Yuan í
heimsókn til Inging. Hann
kvaðst vera kominn sem frændi
hennar, en hún neitaði að tala
við hann. En þegar hann var að
búast á brott, kom hún til hans
og sagði:
„Af hverju ertu að angra
mig? Ég beið eftir þér og þú
komst ekki. Við höfum ekki um
neitt að tala. Ég er búin að jafna
mig á þessu, og þú ættir að
gera það líka. Farðu!“
Yuan fór án þess að segja
orð, og Inging hneig meðvit-
undarlaus niður á gólfið.
•*_ Rilstjóri og útgefandi: Gísli Ólafsson. Afgreiðsla
ÍJ ÍX V A JL/ og ritstjórn: Leifsgötu 16, Reykjavík. Sími 4954.
Kemur út sex sinnum á ári. Verð kr. 12,50 hvert hefti í lausasölu. 'j
Áskriftarverð 70 kr. á ári. Gjalddagi áskrifta er 1. júli. Utanáskrift i
tímaritsins er: TIIiVAL, timarit, Leifsgötu 16, Reykjavik.