Úrval - 01.12.1957, Page 44

Úrval - 01.12.1957, Page 44
tJRVAL MATARÆÐI OG HJARTASJÚKDÓMAR kransæðastíflu og mataræðis. Hugmyndir okkar um tilkomu sjúkdómsins eru eitthvað á þessa leið: Hjartað, sem er geysiaflmikill vöðvi og vinnur hvíldarlaust, þarf að fá blóð til að bera sér eldsneyti og nær- ingu. Það fær það um krans- æðarnar, sem greinast út frá aðalslagæðinni (aorta), er flyt- ur blóðið beint frá hjartanu. Þegar menn eldast vill safnast fitukennt efni innan á veggi kransæðanna og sumra annarra slagæða. Þetta er nefnt æðasigg (atheroma), og þess gætir mis- jafnlega mikið hjá mönnum. Við þetta þrengjast kransæð- arnar og blóðrennslið til hjarta- vöðvans minnkar. Ef hjartað þarf að erfiða, t. d. við röskan gang eða hlaup, getur skortur á blóðsókn og næringu til hjartavöðvans valdið verk, sem nefndur er hjartakveisa (ang- ina pectoris). En hitt er þó alvarlegra, að við tregt rennsli blóðsins um þröngar kransæð- arnar er hætta á að í því mynd- ist blóðlifrar, sem stífli krans- æð. Slík kransæðastifla getur svift hluta af hjartavöðvanum allri næringu, og sé sá hluti stór, getur hún valdið dauða. Sumir ætla, að breyting hafi orðið á blóðinu í mönnum, sem fengið hafa eða eiga á hættu að fá kransæðastíflu, þannig að meiri hætta sé á að í því myndist blóðlifrar. I æðasigginu er fitukennt efni, sem nefnist kolesterol. Margir læknar og vísindamenn ætla, að það sé mikið kolester- olmagn í blóðinu sem veldur því að sigg sezt innan á æðavegg- ina. Því sé allt það sem eykur kolesterolið í blóðinu líklegt til þess að auka æðasigg og þá um leið hættuna á æðastíflu. Víðtækar tilraunir hafa verið gerðar til að finna hvað það er sem eykur kolesterolið í blóð- inu. En við vitum ekki enn með vissu hvort ofmikið kolesterol í blóðinu valdi í raun og veru æðasiggi. Ekki vitum við held- ur með vissu hvort líklegt sé að æðasigg valdi æðastíflu. Við höfum til dæmis enga vissu fyr- ir því, að æðasigg sé algeng- ara hér á landi en áður, þó að víst sé að æðastífla sé miklu tíðari. Þá má einnig benda á, að hjá Bantúnegrum í Suður- afríku er æðasigg engu fátíðara en hér, þótt æðastífla sé miklu íatíðari. Ein aðferðin til þess að skera úr um það hvort mataræði geti valdið æðastíflu er að bera saman tvo hópa manna og sjá hver munurinn er á mataræði þeirra og í hvorum hópnum æðastífla er tíðari. Þetta hefur nýlega verið gert á þrennan hátt. í fyrsta lagi með því að bera saman mataræði og æðastíflu- dauðsföll í ýmsum löndum. 1 öðru lagi með því að bera sam- an mataræði og æðastífludauðs- föll mismunandi stétta í sama 42
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.