Úrval - 01.06.1968, Qupperneq 24

Úrval - 01.06.1968, Qupperneq 24
22 ÚRVAL Til skamms tíma voru þeir taldir um milljón ára gamlir, en nýjustu aldursákvarðanir benda til, að þeir séu að minnst kosti sumir yfir tveggja milljón ára gamlir, eða frá því er ísöld var að hefjast norðar á jörðu. Raunar má finna háþrosk- uð dýr, sem nokkuð svipar til manna, í mun eldri lögum frá Af- ríku og frá Indlandi, og vilja sum- ir túlka þessa fundi þannig, að stofn sá, er menn þróuðust af, hafi greinzt frá ættmeiði apa fyrir a.m. k. 14 milljónum ára. Hálfmennirnir hafa hlotið ýmis fræðinöfn. Sá, sem fyrst fannst, var kallaður Australopithecus eða suðurapinn, en höfuðkúpa barns af þessari tegund fannst árið 1924 í Suður-Afríku. Síðan hafa margir vísindamenn velt vöngum yfir leif- um þessara manna — eða dýra — svo sem suður-afrísku fræðimenn- irnir Raymond Dart, Robert Broom og John Talbot Robinson, og enski mannfræðingurinn L. S. B. Leakey og kona hans. Frumstæð verkfæri hafa fundizt hjá beinum sumra hálfmanna og sviðin bein, sem benda til kunn- áttu í meðferð elds. Ýmsir vísinda- menn hallast þó að því, að heila- bú hálfmanna sé of vanþroskað til þess að þeir hafi hugsanlega gert verkfærin eða kveikt eldinn. Ný- lega fundu Leakeyhjón leifar mun þroskaðri manns í Afríku, sem kall- aður hefur verið Homo habilis. Rannsókn á þessum leifum er hvergi nærri lokið og lítið enn um þær birt. Nýlega hefur Leakey þó getið. þess til, að menningarleifar þær, sem kenndar eru hálfmönn- um, séu í raun og veru menjar Homo habilis, er iifað hafi sam- tímis hálfmönnum og á sömu slóð- um. Slíkum tilgátum ber vitanlega að taka með varúð, unz frekari at- huganir hafa farið fram. Að lokum má geta þess, að eng- inn fræðimaður telur, að menn geti rakið ættir til apa, heldur er álit manna, að menn og æðri apar séu komnir af sameiginlegum stofni prímata. Svo sem ég hef nú rakið, er margt á huldu um þennan stofn, svo sem það, hvar og hvenær þró- un dýrs í mann hefur farið fram. En vísindamenn glíma við þessi vandamál, og leit þeirra á eflaust eftir að leiða margt nýtt og fróð- legt í ljós. Þaö skiptir einmitt máli. Þú ert aðeins einn af milljónum, og því ættirðu þá að vera að hafa fyrir því aö segja álit þitt á hlutunum, að blanda þér í mál, sem þú getur leitt hjá þér, að taka afstöðu? Þýzki höfundurinn Hans Habe svarar þessu á eftirfarandi hátt: „Veröldin er 1% góð, 1% vond og 98% hlutlaus. Og því er breytni hvers einstaklings þýðinganmikil." Executives ’Digest.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.