Úrval - 01.06.1968, Qupperneq 119
SQUALUS ER SOKKINN
117
loks í tanka, sem útbúinn hafði ver-
ið til að prófa í skip og var þar
hægt að minnka eða auka þrýsting-
inn. Hann prófaði gervilunga sitt
við þrýsting, sem svaraði til 300
feta hafdýpis. Loks leigði hann sér
lítinn kafbát, og hélt til hafs, þar
sem hann prófaði enn gerfilunga
sitt. Tilraunin tókst með ágætum og
vakti athygli blaðamanna og Flota-
yfirvöldin lásu um þessa tilraun í
blöðunum, eins og aðrir. Fréttarit-
ari Evening Star var þarna við-
staddur og sendi blaði sínu ýtarlega
Charles Momsen, skipherra.
frásögn af tilrauninni, þegar Mom-
sen lagði frá landi. Þetta hafði þær
afleiðingar, að þegar Momsen kom
aftur að eftir sína velheppnuðu til-
raun, stóðu háttsettir foringjar úr
flotanum á bryggjunni til að taka á
móti honum.
HALLO, SQUALUS . . .
Sculpin, systurskip Squalus, var
í þann veginn að leggja af stað í
tveggja mánaða reynsluferð til Suð-
urhafa. Warren Wilkin kapteinn
stóð á stjórnpalli og beið eftir að
klukkan yrði hálf tólf en þá ætl-
aði hann að halda af stað. Kl. 11
sá hann yfirforingjann í Portsmouth
koma æðandi niður bryggjuna. -—
Hvað gat hann viljað?
Cole yfirforingi kom um borð og
sagði umsvifalaust: — í!g vil, að þú
haldir strax af stað og athugir um
Squalus. Hann hefur ekki látið af
sér vita síðan hann kafaði og það
getur verið eitthvað að hjá honum.
Hérna er köfunarstaðurinn. Farðu
yfir hann og láttu mig vita undir-
eins, hvað þú verður var við,
Um hádegisleytið kom Sculpus á
þann stað, sem haldið var að Squa-
lus hefði kafað á, en þar var skilj-
anlega ekkert að finna. Sculpus var
fimm mílur í burtu frá þeim stað,
sem Squalus hafði raunverulega
kafað á. Það er ekki gott að segja,
hvað það hefði lengi dregizt að
finna Squalus, ef svo hefði ekki
viljað til, að einn af foringjunum
í brúnni á Sculpus, sneri sér undan
til að þurrka sjóbleytuna framan úr
sér, því að mikið gaf á, og í þann
svip að hann þurrkaði úr augunum,
sá hann eitthvað sem líktist reyk,