Úrval - 01.06.1968, Qupperneq 96
94
ÚRVAL
skæri á þessa lífæð, þessa fjórföldu
röð brautarteina, þá væri svipað
því, og járnbrautin bandaríska frá
hafi til hafs, og síðan allt þjóðvega-
kerfi þessa sama lands á þessari
leið, væri eyðilagt. Það er því engin
furða, þótt rússnesku herforingjun-
um sé ekki rótt. Um þessar mundir,
eru öll hergögn, sem Rússar senda
Vietnammönnum, en þeir leggja
þeim til 80% þeirra hergagna, sem
þeir nota, send með þessari járn-
braut.
Það er svo sem ekki mikið mark-
vert að sjá í Síberíu úr lestinni séð.
Utan borganna, er varla hægt að
segja að sjáist vegarspotti, ekki
lagður vegur, heldur troðnar slóðir
aðeins. Þarna eru ómálaðir kofar,
girðingaræksni, blóm á stangli,
endalausar breiður af kartöflugrasi,
og bíll sést að heita má aldrei og
sjaldan reiðhjól utan borganna. Fá-
menni er svo mikið að hver einstak-
ur maður vekur athygli, endrum og
eins sjást strákar að svamla naktir í
tjörn, eða stúlka á kartöfluakri, og
vekur hún kannski furðu ferða-
langsins, því að hún er máski í
bikini baðfötum, við vinnu sína.
Stöku sinnum sjást karlmenn sitja
umhverfis áningareld við að hita
sér te. Þrátt fyrir hina geysilegu
stærð landsins, og stöðuga fólks-
flutninga þangað og öran vöxt borga
eru þarna ekki enn fleiri íbúar en í
New York og Nýja-Englandi saman-
lagt.
En það er enginn áróður að Sí-
bería sé ótrúlegt auðugt land. Þar
eru sífellt að finnast nýjar olíulind-
ir, demants- og gullnámur, kol og
álefni. Síbería er svo auðugt af
kolum, að það er haldið, að þar sé
meira um kol, en í allri Vestur-
Evrópu.
Um margra ára bil héldu jafnvel
sérfræðingar, að þessi auðæfi lægju
um aldur og ævi ónotuð vegna hinna
miklu og stöðugu frosta í jörðu. En
það er ekki svo lengur. Vísindin
hafa nú leyst þrautina og opnað
dyrnar að þessum auðæfum, jafn-
vel harðasta vetrartímann. Það er
næstum lokið við að byggja hina
furðulegu borg Aikhal, en hún er
fjærst í norðri. Hún er algerlega
lokuð og öll undir einu þaki. Það
skiptir engu máli, þó að mælirinn
sýni 20 stiga frost, þú gengur um á
skyrtunum á götum þessarar borg-
ar. í demantsnámunum þar í grennd
er unnið allan ársins hring.
Tökum dæmi af borginni Novo-
sibirsk, sem er stærsta borgin aust-
an Úralfjalla. Novosibirsk er óvist-
leg og ljót borg með verksmiðju-
samstæðum mílu eftir mílu og feikn-
legum verkamannabústöðum líkust-
um bröggum. En þarna er geysileg
framleiðsla á allskyns tækjum,
neyzluvörum, vatnsaflshreyflum,
vísindatækjum. Og það eru tylftir
annarra ört vaxandi borga af þessu
tagi í Síberíu, þar sem áður var að-
eins villtur skógur fyrir tíu áriun
síðan. Þetta á við t.d. um „Vísinda-
borgina“, í Akademgorodok, þar
búa um það bil 30. þús. vísindamenn,
verkfræðingar og tæknifræðingar.
Þetta furðulega býflugnabú afburða
heila fæst við hin margvíslegustu
viðfangsefni, þar á meðal, hvernig
hægt sé að nýta Síberíu.
Klukkustundarakstur frá Irkutsk
liggur hið einkennilega vatn Baikal