Úrval - 01.06.1968, Side 48
46
ÚRVAL
listarmenn leika við hverja máltíð.
Stundum eyddu nokkrir vinir
kvöldinu með honum, skáld, arki-
tektar og nokkrir lærðir munkar
og þá nutu gestirnir nærveru hins
einmana munks, sem skemmti þeim
þá með sínum fyndnu rökfærslum
og mannviti, En slíkur félagsskap-
ur var sjaldgæfur. Hans líf var að
mála. Það var eins og hann keppt-
ist við dauðann til að tjá í litum
og línum þær geðshræringar og
hugsanir, sem fylltu huga hans í
vöku og draumi.
Þegar hann tók að sér að mála
altaristöflu fyrir nýja dómkirkju í
Toledo valdi hann sér að viðfangs-
efni, þegar Kristur var afklæddur
fyrir húðstrýkinguna. Myndin varð
snilldarverk, en mjög frábrugðin
hefðbundinni, myndrænni rósemi
hinna ítölsku meistara. Hún varð of
frumleg og litþrungin til þess að
kirkjufeðurnir skildu hana. E1
Greco kærði fyrir dómstólunum og
þar upphófst sögulegt einvígi með
vitnaleiðslum frá beggja hálfu. •—
Meðan vitnin þuldu framburð sinn,
stóð E1 Greco þögull og stoltur á
svip og horfði með fyrirlitningu á
þá, sem gerðu athugasemdir við
listaverk hans. Að lokum sættist
hann á að fá greiddan þriðjung hins
upphaflega verðs, sem honum hafði
verið lofað. En að lokum hagnað-
ist hann samt á þessu tapi sínu, því
hann endurmálaði myndina seytján
sinnum og einstaklingar og kirkjur
eignuðust öll hin eintökin. Á þeim
tíma var algengt og þótti ekkert at-
hugavert, þótt listamenn máluðu
aftur (kópíeruðu) myndir sínar. E1
Greco gerði þetta við margar af
myndum sínum. T. d. seldi hann
málverkið St. Francis in Ecstasy
áttatíu sinnum. Hann lenti einnig í
deilur við ríkisstjórnina, þegar hún
vildi leggja söluskatt á málverk
hans. í þeirri deilu bar hann hærri
hlut og varð það öðrum spænskum
málurum til mikillar hjálpar.
Hann gerði sér þó engar gylli-
vonir um laun sín og sagði eitt
sinn: „Það er jafn víst, að nafn
mitt verður meðal niðjanna nefnt
meðal hinna mestu snillinga mál-
aralistarinnar, eins og það, að
greiðslan, sem ég fæ fyrir málverk
mín, er of lítil,“
Hann lézt í apríl 1614 — bláfá-
tækur og skuldaði þriggja ára húsa-
leigu. Engin húsgögn voru í þess-
um 24 herbergjum hússins, hann
hafði selt þau til að geta lifað.
Hér hafa því verið raktir nokkr-
ir þættir um ævi Grikkjans, sem
varð einn þekktasti málari Spán-
verja vegna sinna snjöllu hugmynda
og tækni.
☆
„Hvað haíið þér handa manni, sem á allt?" spurði viðskiptavin-
urinn afgreiðslumanninn.
„Öfund,“ svaraði afgreiðslumaðurinn, „ekkert nema öfund.“
R.Q.L.