Úrval - 01.06.1968, Qupperneq 45
EL GRECO
43
ur málað eins og hann og þótt hann
væri óefað einn af mestu málurum
allra alda, var list hans lítill gaum-
ur gefinn og í mesta lagi fyrirlitin
næstu þrjú hundruð árin eftir
dauða hans. Árið 1881 mótmælti
forstöðumaður Prado-safnsins í
Madrid því, að þessar „fjarstæðu-
kenndu myndir" hans yrðu sýndar.
Og árið 1902 var gefin út alldigur
fræðibók um listir, en þar var nafn
E1 Grecos ekki nefnt.
List hans hlaut þó fyrst viður-
kenningu um síðustu aldamót, en
þá hófst mikil bylting gegn hefð-
bundnum og ríkjandi formum í
listaheiminum. Cézanne, Monet og
margir fleiri börðust fyrir frelsi í
notkun ljóss, lita og lína. Þessir upp-
reisnarandar fundu í myndum E1
Grecos mann, sem var jafnlifandi,
nýr og ferskur og þeir sjálfir, Nú
hófst list hans upp úr húmi skiln-
ingsleysis til ljóss frægðar.
Listaverkasalar og áhugasamir
safnarar flykktust nú til Toledo og
hófu þar mikla leit, jafnt í kjöllur-
um og þakherbergjum sem í kirkj-
um og á einkaheimilum. Ýmsir
seldu listaverk hans fyrir hlægi-
lega lítið verð. Málverkið Cardinal
Fernando Nino de Guevara var selt
fyrir gjafverð, en er nú talið nærri
ómetanlegt listaverk. Við þessa leit
kom þó í ljós, að fjölmargar af
myndum E1 Grecos voru horfnar
sporlaust og sú staðreynd örvaði
safnara mjög í leit sinni. Nú vita
menn aðeins um tæplega 300 af
myndum hans. Til er skrá, sem son-
ur hans, Jorge Manúel, gerði sjö
árum eftir dauða föður síns. Þar eru
talin upp 241 málverk, sem þá voru
í hans eigu, en allmörg af þeim lista
eru nú gersamlega týnd, svo að
enginn veit, hvar þau eru niður
komin. Enginn veit heldur, hve
mörg önnur málverk E1 Grecos hafa
týnzt og eyðilagzt í tímanna
straumi.
Ýmislegt er einnig óljóst um ævi
hans sjálfs. Hann hélt enga dagbók
og skrifaði fá bréf. Vitneskjan um
hann er fengin úr ýmsum áttum og
lítið úr hverjum stað, enda er hér
aðeins um nokkra þætti að ræða.
Hann fæddist á eyjunni Krít árið
1541 og hlaut í skírninni nafnið
Domenikos Theotokopoulus, en varð
Mynd af konu.