Úrval - 01.06.1968, Page 35

Úrval - 01.06.1968, Page 35
LEIFTURÁRÁS Á ZEEBRUGGE 33 tímaáætluninni. Það var þung und- iralda, og það gekk ofboðslega illa að halda skipinu nokkurn veginn kyrru við hafnargarðinn. Ferjan Daffodill lagðist því utan á Vindic- tive og þrýsti því upp að hafnar- garðinum og hélt því þar nokkurn veginn kyrru. Helmingur þess liðs, sem reyndi fyrst að ryðjast upp landgöngubrýrnar, var felldur með vélbyssuskothríð. Liðsforingi, sem misst hafði annan handlegginn í kúlnahríðinni, veifaði til mannanna með hinum handleggnum og hvatti þá óspart til þess að ráðast til upp- göngu á hafnargarðinni. En land- gönguliðið gat ekki þaggað niður í fallbyssunum á hafnargarðinum. Mennirnir, sem áttu að varpa sprengjum á flugskýlin og skipa- kvíarnar, voru stráfelldir, áður en þeim tókst að ná þangað. Og kúlna- hríðinni rigndi óaflátanlega yfir yf- irbyggingu Vindictive, en hún náði talsvert upp fyrir hafnargarðinn. Meðan á þessu stóð, hraðaði kaf- báturinn C-3 för sinni í áttina til hábrúarinnar. Kúlnahríðin dundi allt umhverfis hann, enda var auð- velt að sjá hann vegna eldbloss- anna. í stefni hans voru 5 tonn af sterku sprengiefni. Hæfði sprengi- kúla í mark, mundi kafbáturinn springa í loft upp og tætast sundur. Þjóðverjarnir, sem verja skyldu há- brúna, héldu, að kafbáturinn ætl- aði að reyna að komast undir brúna og þannig inn í sjálfa höfnina. Þeir hlógu. Þeim yrði ekki skotaskuld úr því að ráða niðurlögum kaf- bátsins. Þeim tækist að fá áhöfn hans án nokkurrar fyrirhafnar. Sandford skipherra sigldi kaf- bátnum á mikilli ferð inn á milli stáluppistaða hábrúarinnar og kveikti í sprengjuþráðinum. Hann stökk út í lítinn vélbát ásamt mönn- um sínum, en þeir ætluðu að kom- ast burt á honum. En skrúfan hafði eyðilagzt af sprengikúlu. Þeir urðu því að róa lífróður. Og svo þeytt- ist hábrúin hátt í loft upp með geysilegri sprengingu sem risavaxið blys. Þjóðverjarnir, sem höfðu átt að verja hana, létu lífið samstundis, og sambandið milli hafnargarðsins og strandarinnar var nú rofið. Ein- um þætti ætlunarverksins var nú lokið samkvæmt áætlun. Thetis kom siglandi fyrir endann á hafnargarðinum, einmitt í sama bili sem hábrúin sprakk í loft upp. Ætlunarverk Thetis var að sigla upp eftir skipaskurðinum og beint á hlið fyrsta hólfsins. Þau Intrepid og Iphigenia fylgdu fast á eftir. Thetis var með mjög mikla slag- síðu, því að það hafði orðið fyrir mörgum skotum af fallbyssunum á hafnargarðinum. En Thetis tókst að komast í gegnum stálnetagirðing- arnar, en þó fór svo um síðir, að skrúfan festist í víraflækjunni. Thetis hafði orðið fyrir slíkum skemmdum, að það virtist ekki vera nein von um það lengur, svo að skipherrann gaf hinum skipunum merki um að sigla fram hjá. Intrepid sigldi í broddi fylkingar inn í mynni skipaskurðarins, þótt skothríðin dyndi allt í kring. Því tókst að komast að skurðmynninu. Skipherrann sigldi skipinu beint á austurbakka skurðarins. Stefnið skal á honum, og svo sveigði hann skipið til, þangað til skuturinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.