Úrval - 01.06.1968, Side 47

Úrval - 01.06.1968, Side 47
EL GRECO 45 síðan þekktur undir nafninu E1 Greco (= Grikkinn). Mjög lítið er vitað um æskuár hans, en af ýms- um verkum hans þykir mega ráða, að hann hafi fyrst stundað nám í býzanskri tréskurðarmyndamálun. Síðar flutti hann til Feneýja, vann í vinnustofu Titians og lærði þar margt og mikið, einkum í meðferð lita. Nokkrum árum síðar fluttist hann til Rómar. Þá komu fram til- lögur um að mála upp nokkrar af hinum nöktu persónum í málverki Michelangelos Hinn efsti dómur. Þá átti E1 Greco að hafa látið frá sér fara svohljóðandi yfirlýsingu: „Eyðið allri myndinni og leyfið mér að gera aðra. Ég skal gera aðra mynd, sem segir allt af hrein- skilni, en býr þó yfir fullu vel- sæmi“. En andi og list Michelangel- os sat í efsta sæti í Róm og vonir E1 Grecos urðu þar að engu. Hon- um var vísað í útlegð. Næst fréttist af E1 Greco árið 1577 og þá var hann seztur að í Toledo, hinni fögru og fyrrverandi höfuðborg Spánar. Þar hafði hann tekizt á hendur að mála hina nýju Santo Domingo el Antiguo-kirkju. Þessi fornfræga borg hafði mikil áhrif á hann sem málara og til þess að skilja list hans verða menn að þekkja borgina og meta hana rétt. Þegar E1 Greco kom til þessarar borgar, var hann varla meira en góður annars flokks listamaður, en fimm árum seinna er hann orðinn einn af hinum mestu snillingum, sem uppi hafa verið. Toledo vakti hann til dáða, — þar gerðist krafta- verk og gerbylting í list hans. Að- dáun hans á borginni sést greini- lega á málverki hans „Útsýn yfir Toledo“. Myndin er varla rétt gerð frá sjónarmiði byggingafræðinnar, en í henni er ennþá meiri Toledo- andi, heldur en nokkurn tíma er í borginni sjálfri. Þarna lifði hann 37 ár og bjó á þremur stöðum í borginni, en lengst þó og síðast í allstórri höll með 24 herbergjum. Konan í lífi hans hét Jeronima de las Cuevas og fegurð hennar birtist í málverkinu La Dama del Armino. En var hún eig- inkona hans? Engin fullnægjandi sönnun er til fyrir því. Einn ævi- sagnaritari telur ástæðuna fyrir því, að E1 Greco lét aldrei lögfesta samband þeirra, vera það, aS hann hafi átt eiginkonu á Ítalíu. Jeronima fæddi honum einn son, sem hér hefur áður verið nefndur. Hann var einnig málari og vann með föður sínum. Frægasta mál- verk E1 Grecos nefnist Jarðarför Orgaz hertoga og fremst á þeirri mynd er mjög fallegur drengur með hvítan klút í vasanum, en á klút- inn er nafn listamannsins ritað á grísku, ásamt orðunum „É'g málaði þetta“, og þar er einnig fæðingar- ár Jorge Manúels. Þessi mynd er á altaristöflunni í Santo Tomé-kirkj- unni í Toledo og á að sýna, hvar heilagur Ágústus og heilagur Stefán stíga niður af himnum til að jarð- syngja þann, sem lét byggja kirkj- una, en það var Gonzalo Ruiz, her- togi af Orgaz. Einnig voru í húsinu roskinn hús- vörður og matreiðslumaður, sölu- maður listamannsins og nokkrir nemendur hans. Þegar listamaður- inn átti nóga peninga, lét hann tón-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.