Úrval - 01.06.1968, Page 109

Úrval - 01.06.1968, Page 109
ÓHLÝÐNI KONSÚLLINN 107 nokkur vegabréf, sem sýndust gild, en voru það ekki. Nú sat hann þarna í skrifstofu sinni. Og nú þurfti á miklu að halda, ef duga skyldi. Fólk þyrptist að og þyrpt- ist að. Út um gluggann að sjá var þetta endalaus biðröð. Þúsundir. Sumum hafði hann hleypt inn í hús sitt. Þeir sátu í biðstofu hans, á rúmunum í svefnherbergi hans, í stigunum. Mendes og fjölskylda hans átu máltíðir sínar í eldhús- inu. Samt var í rauninni engin veruleg ókyrrð, því enginn kaus að hverfa úr því sæti, sem honum hafði verið úthlutað, af ótta við að lenda þá aftast í biðröðinni, og sumir höfðu engan mat fengið í marga daga. „Hvar er konsúll Portúgals?" hrópaði einhver úti á stræti. En hann sat þá við skrifborð sitt og var að athuga fyrirmælin sem hann hafði að endingu fengið frá Lissa- bon. Þar stóð: „Enginn flóttamaður fær vegabréf nema hann eigi þar lögheimili. Enginn Gyðingur fær vegabréf hvernig sem ástatt er.“ Fyrir utan biðu 10000 Gyðingar. Hver einstakur vissi að líf hans var í veði. Mendes gekk út á tröppur húss síns. Hann stóð þar þráðbeinn og allir vissu að nú var þessari löngu bið loksins lokið. Enginn af þeim sem heyrðu orð hans mun nokkru sinni gleyma þeim. „Ég verð að reyna að leysa vand- ræði ykkar. Ég ætla að láta hvern mann, sem óskar þess, fá vegabréf, hvort sem hann getur goldið fyrir það eða ekki. „Svo sneri hann sér að konu sinni: „Ég veit,“ sagði hann, „að frú de Sousa Mendes er þessu samþykk. Það má vel vera að mér verði sagt upp stöðunni, en samx verð ég að hlýða kalli samvizkunn- ar.“ Þessum orðum var tekið með miklum fögnuði, og flóttamennirnir drifu inn í skrifstofuna. Mendes setti kaffiborð á hjólum fyr- ir framan legubekk í skrifstof- unni. Hann beygði sig yfir það og fór að afgreiða vegabréf. Að þessu vann hann ásamt sonum sínum tveimur, Pedro og José, í þrjá daga sleitulaust, unnti sér varla svefns né matar. Ekkert tók hann fyrir þetta, en var þó oftar en einu sinni boðið stórfé. Alls tókst honum að bjarga 10000 Gyðingum, sem annars hefðu lent í klóm nazista og verið brenndir í gasofnum. Að kvöldi hins þriðja dags var verkinu lokið: þá afhenti hann hinum síðasta flótta- manni vegabréf hans. En í sama bili féll hann um koll á gólfið, yfirkominn af þreytu, sjúkur. Fréttin af aðferð hans hafði þeg- ar borizt til Lissabon. Tveir lög- regluþjónar voru sendir að sækja hann og fara með hann til Portúgal. Þeir tóku hann upp í bíl sinn og þegar þeir fóru gegn um Bayonne, sáu þeir að þar hafði safnazt biðröð fyrir framan bústað konsúlsins. Mendes og förunautar hans fóru gegn um þvöguna og gengu rakleitt inn í skrifstofu konsúlsins. „Hvers- vegna hjálpið þér ekki þessu fólki,“ sagði Mendes við vara-konsúlinn. Hann svaraði: „Ég hef fengið fyr- irmæli frá Lissabon um að gefa engin vegabréf út, og sízt af öllu handa Gyðingum, og þessum fyrir- skipunum ætla ég að hlýðnast."
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.