Úrval - 01.06.1968, Síða 116

Úrval - 01.06.1968, Síða 116
114 ÚRVAL þarna að einmitt í þann mund, að Maness taldi ekki lengur fært að halda dyrunum opnum. Þegar kokk- urinn var kominn inn fyrir, gat hann ekki beðið lengur jafnvel þótt hann hefði vitað einhverja enn vera afturí. Venjulega var mjög auðvelt að láta aftur þessar þungu stálhurð, en nú stóð báturinn næstum lóðrétt uppá endann, og þess vegna varð að lyfta hurðinni, en hún vó nokk- ur hundruð pund og það gat eng- inn komizt að til að hjálpa Man- ess vegna þrengsla. Hann tók á af öllum kröftum og meira þó, því að hér var um lífið að tefla og eftir mikil átök tókst honum að loka. Nokkrum augnablikum síðar snerti Squalus botninn og settist síðan kjölréttur, en lyfti síðan aðeins framstafninum og stöðvaðist þann- ig. Maness bar vasaljósið upp að kýrauganu á klefanum og sá olíu- mengað vatn streyma hjá að utan. Klukkan var 8.45 og þannig ekki liðnar nema fimm mínútur, frá því Squalus hafði stungið sér, en samt varð það ekki greint á yfirborði sjávar að þetta skip hefði nokkurn tímann verið til. STUNGIÐ UNDIR STÓL Þá víkur sögunni aftur til ársins 1925. Svíinn Momsen lá vakandi og harmaði örlög félaga sinna á S-51. Hann hafði átt einn sinn bezta kunn- ingja þar um borð. Þeir höfðu ver- ið saman á sjóliðsforingjaskólanum og miklir mátar. Hann hét Haseld- en þessi maður. Þegar S-51 var dreginn úr djúpunum, var greini- legt, að Haselden hafði dáið kvala- fullum dauða og það var svipur- inn á andliti hans, sem hélt vöku fyrir Momsen og þess vegna hratt hann nú í framkvæmd því áformi sínu að finna einhver ráð til að bjarga mönnum, sem voru innilok- aðir í kafbáti á hafsbotni. Hann teiknaði bjöllulaga klefa, opinn í annan endann. Hann hugs- aði sér síðan að gengið væri þann- ig frá dekklúgum kafbátsins ekki ósvipað og nú er á þvottavélum, þannig, að þegar þessi bjölluklefi hans væri látinn síga niður á dekk- ið, félli hann vatnsþétt að lúgun- um. Það væri þá hægt að opna þær og mennirnir gætu skriðið upp í klefann, sem síðan væri hægt að loka. Momsen sýndi öðrum skipstjór- um teikningar sínar og bar undir þá ráðagerðirnar. Þeim fannst þetta öllum snjallt mjög og örvaður af undirtektum þeirra sendi hann teikningarnar til hærri staða, Yfirforingi kafbátastöðvarinnar í Nýju-London, kapteinn Ernest J. King fannst mikið til um þessar áætlanir og sendi þær áfram til Washington til þeirra yfirvalda þar, sem mestu réðu um alla smíði kaf- báta. f þessum stað létu menn sér hægt um allar nýjungar, og vik- urnar urðu að mánuðum og mán- uðirnir að árinu og ekkert heyrðist frá Washington um hina nýju upp- götvun Momsens og hann fór að ímynda sér að eitthvað það hefði komið í ljós við athugun á teikn- ingunum, sem farið hefði framhjá þeim í Nýju-London og myndi þær líkast til vera óhæfar. Hann tók því að brjóta heilann um nýja að-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.