Úrval - 01.01.1970, Síða 33
31
eiga 5 heima í Reykjavík, Kópavogi
og Hafnarfirði og 5 annars staðar á
landinu. (Áður en stofnaður var
nýr flokkur Björns og Hannibals).
Af 9 Alþýðuflokksmönnum eiga
6 heima í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði og 3 annars staðar á
landinu.
Af 18 Framsóknarmönnum eiga
6 heima í Reykjavík og Kópavogi
og 12 annars staðar á landinu.
Af 23 Sjálfstæðismönnum eiga 13
heima í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði og 10 annars staðar á
landinu.
Af 60 alþingismönnum eiga 30
heima í Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði og 30 annars staðar á
landinu.
Á flestum þingum hafa átt sæti:
Eysteinn Jónsson á 43 þingum, Em-
il Jónsson á 42 þingum, Gísli Guð-
mundsson á 37 þingum, Bjarni
Benediktsson á 30 þingum, Ingólfur
Jónsson á 30 þingum, Páll Þorsteins-
son á 30 þingum og Sigurður
Bjarnason á 30 þingum. Eru hér
aukaþing meðtalin.
Elztir af núverandi þingmönnum
eru:
Sigurvin Einarsson f. 1899
Bjartmar Guðmundsson f. 1900
Emil Jónsson f. 1902
Hannibal Valdimarsson f. 1903
Gísli Guðmundsson f. 1903
Björn Pálsson f. 1905
•k
Spurninig á einu spurningaeyðublaði Sameinuðu þjóðanna: „Ef svar
yðar við þessari spurningu er „Já“, útskýrið þá, hvers vegna ekki.“
Betty Stones.
„Tókst þér að selja honum McTavish gamla legstað?" spurði skozki
kirkjugarðsstjórinn ritara sinn.
Ritarinn hristi 'höfuðið og svaraði: „Hann var hræddur um, að
hann keypti kannske köttinn í sekfcnum."
„Nú, einhvem tima hlýtur kallinn þó að deyja!" sagði kirkjugarðs-
stjórinn.
„Nú, þetta sagði ég lika við hann, en þá svaraði hann bara: „Nú, en
ef ég týndist nú á hafi úti?“ Irish Dig.
Sjónvarp? Virðið fyrir ykkur svipinn á fólki, seha er að glápa á það?
Það líkist svínum, eftir að búið er að skera þau á háls.
John Steinbeck.
Rithöfundur einn komst eitt sinn svo að orði, að óttinn skilaði manni
lengra áleiðis en hugrekkið .... en bara í aðra átt.
„Þykir þér gaman að dansa við mig?“ spurði hann.
„Já,“ svaraði hún, „þú ert svo léttur á fótum minum.“