Úrval - 01.01.1970, Blaðsíða 95
VITNISBURÐUR MINN
93
halds fangabúðanna. Þá var nú
ekki mikið eftir, en af því urðum
við samt að greiða nokkrar rúblur
fyrir fangabúninga okkar og þar
að auki 13 fyrir mat. (Sem frjáls
maður hefði ég eytt 50 rúblum í
mat og get samt ekki sagt, að ég'
hafi þá heldur gott viðurværi).
Það má segja, að mikil kaldhseðni
hafi verið fólgin í auglýsingaskilt-
um þeim, sem gat að líta víðs veg-
ar í fangabúðasvæðinu, en á þeim
stóð: SAFNIÐ OG KAUPIÐ BÍL.
En samt máttum við. heita heppnir,
ef okkur tókst að leggja svo mikið
fyrir alla fangabúðavistina, að við
ættum fyrir fötum og skóm, þegar
okkur var sleppt lausum. Fyrsta
mánuðinn var aðeins 48 kapeka
(um 50 centa) afgangur af launum
mínum, og næsta mánuð varð hann
enginn.
Það var mér mikil freisting, að
leggja ekki niður þessa ofboðslega
erfiðu þrælavinnu og láta þá setja
mig í einangrunarklefa. En ég hafði
tekið þá ákvörðun, að ég' skyldi ekki
híma innan gaddavírsgirðingar
langtímum saman, jafnvel þótt
fangabúðirnar kynnu að reynast
þolanlegar. Ég ætlaði mér að reyna
að finna einhver ráð til þess að
strjúka. Því varð ég að vingast við
aðra fanga og læra allt um fanga-
búðirnar og rekstur þeirra, þangað
til ég þekkti þær alveg niður í
kjölinn. Ef til vill tækist mér að
finna einhvern, sem vildi gerast
félagi minn og hætta á flótta með
mér.
Einn fanganna, sem ég kynntist
einna fyrst, var Anatoly Burov.
Það var lágvaxinn, sköllóttur mað-
PÁLL THE'ÓDÓRSSON,
EÐLISFRÆÐINGUR
Páll Thieódórsson er fæddur
í Reykjavík 4. júlí 1928. For-
eldrar hans eru Theódór
Jakobsson og Kristín Pálsdóttir.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum i Reykjavík
1947 og fyrrihlutaprófi í verk-
fræði frá Háskóla íslands 1950.
Síðan stundaði hann nám i
Kaupmannahafnarháskóla og
lauk þaðan magisterprófi i eðl-
isfræði 1955. Hann var sérfræð-
inigur hjá Atom.enener.gi'kom-
missionen við rannsóknarstöð-
ina í Risö í Danmörku 1956—
58 og síðan hjá Eðlisfræðistofn-
un Háskóla íslands frá stofnun
hennar 1958—61. Hann stofnaði
ásamt fleirum fyrirtækið Raf-
agnatækni og vann þar 1961—
63, en -hóf þá aftur störf fyrir
Eðlisfræðistofnun Hl. Pálí er
kunnur fyrir útvarpsþætti sína
um tækni og visindi og lýsingu
á tunglSkotuim Bandaríkja-
manna. Kona hans er Svandís
Skúladóttir.
v._________________!_________j