Úrval - 01.06.1971, Blaðsíða 42
40
UM PRESTA
• Allt verður fyllt nema
pokinn prestsins.
• Eins eru prestar og aðrir
menn, ekki má þeim trúa.
• Flest étur svangur prestur
og soitinn djákni.
• Gott er að vera prestur
um páska og engill í ofviðri.
• Líka hefur fundizt skarn í
skálinni prestsins.
• Prestsfiskur (fiskur gold-
inn presti) er fagur og magur.
• Það er sjálfsagt um prest-
lambið, þó heylítið sé.
• Seint fyllist sálin prest-
anna.
Allt islenzkir málshœttir.
_______________________j
ÚRVAL
leika sér í uppáhaldsleikjunum, elt-
ingarleik, róluleik og fífldirfsku-
stökkum og sveiflum í vafnings-
viðarflækjunum og bruni niður eft-
ir risavöxnum bökum og vömbum
hinna fullorðnu. En þær þurfa ekki
að gera annað en að líta hvasst á
óþekktarormana einu sinni, og þá
flýta þeir sér tafarlaust í rúmið.
Ungarnir eru næstum algerlega
háðir mæðrunum í um þrjú ár, og
því leggja þær stund á getnaðar-
varnir með prýðilegum árangri og
eignast aðeins afkvæmi þriðja eða
fjórða hvert ár. (Karlaparnir eru
alls ekki neinir kynóðir lostasegg-
ir. Þeir virðast hafa næsta lítinn
áhuga á kynferðismálum eftir mæli-
kvarða mannanna).
Eitt sinn var álitið, að górilluap-
arnir væru ekki eins gáfaðir og
simpansarnir. En sérfræðingur einn
í öllu því, sem lifnaðarhætti gór-
illuapanna snertir, dr. Ernst Lang,
framkvæmdastjóri dýragarðsins i
Basel í Sviss, hefur þetta að segja
um þá: „Það er alls ekki um það
að ræða, að górilluaparnir geti ekki
gert hið sama og simpansarnir gera,
heldur eru þeir það klókir, að þeir
gera bara það, sem þeir sjálfir
kæra sig um að gera. Þeir eru allir
einstaklingshyggjusinnaðir, sjálf-
stæðir og óháðir með háþroskaðan
persónuleika."
Líf górilluapanna er samt langt
frá því að vera neitt sældarlíf. Þeir
þjást af sömu sjúkdómum og menn-
irnir, einkum kvefi og öðrum sjúk-
dómum í öndunarfærum. Meðal-
æviskeið þeirra í faðmi Móður
Náttúru er aðeins 20 ár. Nú eru
górilluveiðar ólöglegar víðast hvar,