Úrval - 01.06.1971, Blaðsíða 114
112
henni að kenna ensku við skólann.
„Faðir Candy hafði mjög ákveðnar
stjórnmálaskoðanir,“ segir vinur
hennar, „og hann hafði þau áhrif á
hana, að hún lét sig þjóðfélagslegt
réttlæti miklu máli skipta.“
Rick fetaði brátt í fótspor hennar
á því sviði. „Óeirðirnar við Colum-
biaháskólann virtust kveikja í hon-
um,“ segir annar vinur þeirra.
„Hann byrjaði að spyrja ótal spurn-
inga um allt mögulegt. Og hann las
og las alls konar bækur sem óður
maður vikunum saman, bækur eftir
þá Marx, Marcuse, Fanon og fleiri.
Og að þeim lestri loknum var hann
orðinn mjög róttækur í skoðunum."
Brátt varð Draugahúsið að mið-
stöð fyrir Samtök lýðræðisþjóðfél-
agssinnaðra stúdenta (Students for
a Democratic Society, SDA( í bæn-
um, en það voru þá kraftmestu rót-
tæku stúdentasamtökin. Stúdent
einn, sem bjó þá í íbúð þeirra, hef-
ur þetta að segja: „Suma dagana
bjuggu allt að 30 manns hjá þeim
Rick og Candy. Þetta fóik svaf á
gólfinu í herbergjunum og frammi
á göngum. Þegar veðrið var gott,
svaf það í svefnpokum undir trján-
um. Ég minnist morguns eins, þegar
mjólkursendillinn kom másandi upp
hæðina og spurði: „Hvaðan kom
þetta fólk“? Svarið var: alls staðar
úr Bandaríkjunum. í einum svefn-
pokanum var kannski par frá Berke-
ley í Kaliforníu, sem ætlaði að
dvelja þarna í nokkra daga á leið
sinni til Harvard. Og í þessum
svefnpoka við stíginn var einhver
náungi frá Michigan. Sumt af þessu
unga fólki var á listum hjá Alríkis-
rannsóknarlögreglunni yfir eftirlýst
TJRVAL
fólk, sem hún var. að leita til yfir-
heyrslu eða handtöku.“
Það lék enginn vafi á því, að
stúdentarnir, sem bjuggu í Drauga-
húsinu, og kommúnurnar í Eski-
stræti voru alvarleg ógnun við
Kentfylkisháskólann, því að þarna
var saman komið mikið af bráðgáf-
uðu fólki, en það, sem gerði fólk
þetta áhrifamikið á þessu sviði, var
sú staðreynd, að eldri, reyndir bylt-
ingarseggir voru stöðugt að heim-
sækja það. Þar var um að ræða
helztu leiðtoga ofangreindra sam-
taka og ýmsa héraðssendifulltrúa
þeirra, sem ferðuðust um á afmörk-
uðum svæðum á vegum samtak-
anna. Sé listi yfir þessa gesti at-
hugaður lítillega, fæst greinilegt
svar við þessari spurningu: „Voru
það æsingamenn utan Kentfylkis-
háskólans, sem gerðu árásir á
hann?“
Einn þessara gesta var ritari sam-
takanna, Bernardine Dohrn að
nafni, sem vann að skipulagningu
tengsla stúdentasamtaka þessara við
ýmis önnur samtök. Hún átti eftir
að verða þekkt sem einn helzti
stjórnleysissinni (anarkisti) Banda-
ríkjanna. Þeir, sem vöndu komur
sínar í Draugahúsið, minnast henn-
ar sem snjallrar, ungrar konu, er
hafði doktorsnafnbót í lögfræði frá
Chicagoháskóla. Annar gestanna var
Terry Robbins, verðlaunastúdent
frá Lönguey í New Yorkfylki, sem
gekk síðar í „Veðurmennina“, þann
hóp innan stúdentasamtakanna, sem
hneigðist mest að ofbeldisverkum.
Álitið er, að Robbins hafi látið lífið
í sprengingu í húsi einu í Green-
wich Villagehverfinu í New York-