Úrval - 01.06.1971, Blaðsíða 68
66
ÚRVAL
Kreistið aftur augun og varirnar fast saman. Slakið svo hægt á,
þar til magnleysi er náð. Skynjið hvernig slökunar-
kenndin verður smám saman ákveðnari.
Taugaslökun
án róandi lyfja
Eftir LEAVITT A. KNIGHT
æs^r geta stokkið upp
* '''' ' ' ....................
*
i rúmið á kvöldin og
byrjað að hvílast al-
gerlega á stundinni,
því að flestir hafa
orðið fyrir ýmsum
þeim örvandi áhrifum dagsins, sem
gera slíkt ómögulegt. Óþekktir
djöflar innra með manni halda
áfram störfum. Og svefninn kemur
svo loks, annaðhvort órólegur svefn
eða þá alls enginn, nema við getum
þaggað niður í þeim ólgandi öflum,
sem búa innra með okkur og vilja
ekki leyfa okkur að hvílast.
Um langt árabil hafa læknar og
ýmsir sérfræðingar reynt að kom-
ast að því, hvernig meðhöndla skuli
slæma taugaspennu og öðlast heil-
næma taugaslökun og hvíld. Einn
þessara manna, dr. Edmund Jacob-
son * að nafni, hefur helgað líf sitt
þessu vandamáli. Hann vissi, að
læknar höfðu gripið til alls kyns
ráða, sem miklar vonir höfðu ver-
ið bundnar við, svo sem dáleiðslu,
Freudsálkönnunar, heitra baða,
nudds, alls konar mataræðis, lík-
amsæfinga, ýmislegrar dægradval-
ar og lyfja. En þess í stað hóf hann
beinar athuganir og rannsóknir á
eðli spennu og slökunar. Og eftir að
hafa gert fjölmargar vísindalegar
athuganir, dró hann þá ályktun, að
það er mögulegt fyrir næstum alla
1) að lifa og starfa hvern dag í jafn-
vægi og ró og í eins góðu „áslökun-
arástandi" og íþróttahetja og 2) að
öðlast að vild hina djúpu hvíld ró-
* Dr. Jacobson, sem er höfundur margra
bóka um efni þetta, þar á meðal ,,Pro-
gressive Relaxation" (Slökun stig af stigi)
og ,,You Must Relax" (Þú verður að slaka
á), er 82 ára að aldri og enn geysilega
önnum kafinn, en samt algerlega rólegur
og í fullkomnu jafnvægi.
— Úrdráttur úr Northwest Magazine —