Úrval - 01.06.1971, Blaðsíða 97
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
95
ig á íöstudagskvöldum, þegar þeir
eru að fara burt úr bænum í helg-
arfrí. Oft myndast allt að tveggja
mílna biðraðir, sem teygja sig út
úr bænum, meðan hinar endalausu
vöruflutningalestir mjakast fram
hjá.
Þá bölva bæjarbúar stúdentun-
um, og stúdentarnir bölva bæjar-
búum. „Ef það væru ekki svona
andskoti margir stúdentar, væru
heldur ekki svona margir bílar!“
hrópa bæjarbúar. Og stúdentarnir
hrópa á móti af jafnmikilli rök-
vísi: „Ef þessi andskotans bær léti
reisa bílabrú yfir járnbrautartein-
ana, mundi þetta ekki koma fyrir!“
Bæjaryfirvöld ráðgera að reisa
slíka brú. Þetta hefur verið ofarlega
á framkvæmdaáætlun bæjarins á
hverju ári allt frá 1924.
En hvað bæjarbúa snertir, gætu
jafnvel ekki hinir ofboðslegu um-
ferðarhnútar valdið nálægt því eins
mikilli gremju í gdrð háskólans og
háskólastúdentanna og viss spotti
Nyrðra-Vatnsstrætis gerir. Þar er
um að ræða götuspotta milli tveggja
þvergatna í hjarta bæjarins. Þar er
að finna allar þær subbu- og drasl-
krár og vínstúkur, sem stúdentarnir
sækja mikið. Sex þeirra eru þar
hlið við hlið og keppa hver við
annan með rokkhljómsveitum, há-
vaða og eins konar „undirheima-
lífi“. Svo alræmdar eru þessar
krár og vínstúkur, að það er ekki
óvenjulegt á föstudags- og laugar-
dagskvöldum, að hundruð stúdenta
sé þar að finna, sem hafa komið
þangað gagngert langar leiðir, jafn-
vel úr hinum enda fylkisins. A göt-
unum safnast bifhjólaribbaldaflokk-
ar saman. Þetta er líka „griðastað-
ur“ unglingsstelpna, sem strokið
hafa að heiman, og eldri manna,
sem reyna að selja háskólastúdent-
unum og fylgiliði þeirra eiturlyf.
fyrir
eldhúsgrindur
PLASTPRENT H/F