Úrval - 01.06.1971, Blaðsíða 111
HVAÐ GERÐIST I KENT STATE?
109
12 háskólastúdenta er byltingar-
sinni í þeim skilningi, að hann eða
hún mundi sprengja byggingar í
loft upp eða kveikja í þeim. En þau
eru öll róttækt fólk, sem mundu
gleðjast yfir því að sjá núverandi
stjórnar- og þjóðfélagsform hrynja
til grunna. Og í húsi þessu hafa
margar þær áætlanir átt upptök sín,
sem gerðar hafa verið um ýmsar
þær mótmælaaðgerðir, sem skap-
að hafa hálfgert róstuástand í Kent-
fylkisháskólanum á undanförnum
árum.
Hvers vegna hafa háskólayfir-
völdin þá ekki gert neitt til þess að
stjaka fólki þessu burt? Samkvæmt
lögunum hafa stúdentar þessir ekki
aðhafzt neitt refsivert. Hvorki borg-
araleg yfirvöld né háskólayfirvöld
geta refsað ungu, róttæku fólki, á
meðan það prédikar aðeins, að
breyta eigi um stjórn háskóians og
ná völdunum úr höndum núver-
andi háskólayfirvalda, svo framar-
lega sem það hefst ekki opinber-
lega handa um að gera slíkt með
ýmsum verknaði.
DRAUGAHÚSIÐ
í Kent er ein tylft kommúna, og
„alræmdust“ þeirra allra er í húsi
einu, sem margir lesendur hafa
kannske séð í frægri kvikmynd nú
þegar. Það stendur uppi á hárri
hæð í miðbiki bæjarins, umkringt
trjám, sem vaxa svo nálægt því, að
það er sem það komi beint út úr
ævintýraskógi í Grimmsævíntýri.
Eftirlíking af húsi þessu var notuð
sem svið einnar mestu hrollvekju
síðasta áratugs, kvikmyndarinnar
„Psycho“, sem leikstýrt var af Al-
fred Hitchcock. Hópur kvikmynda-
tökumanna var sendur þangað frá
Hollywood til þess að kvikmynda
þetta furðulega gamla hús, sem er
í ósviknum gotneskum stíl. Og þeg-
ar Hitchcock sá myndirnar, er sagt
að hann hafi sagt: „Gerið eftirlík-
ingu af húsinu. Það er ógnvænlegt,
líkt og það hafi eitthvað illt að
geyma“.
Þetta fræga hús var reist snemma
á 19. öld og gengur undir nafninu
„Draugahúsið“. Eins og áður seg-
ir, stendur það á hárri hæð, og
verður að feta sig upp viðsjárverða
gangstíga til þess að komast að því.
Vandræðin hófust árið 1968, þegar
furðulegt par fluttist inn í íbúðina
á þriðju hæð, en hún er sex her-
bergi og hóf brátt aðgerðir frá
þessu „afskekkta“ og „óaðgengi-
lega“ vígi sínu, aðgerðir, sem leiddu
til furðulegrar atburðarásar, er
eyðilagði næstum háskólann.
Maðurinn var Rick Erickson, há-
vaxinn maður með sítt hár og mik-
ið yfirskegg og hlaðinn geysilegri
orku. Hann gekk alltaf með stór,
dökk sólgleraugu. Hann var sonur
fyrrverandi bæjarstjóra í Akron og
hafði verið geysilega snjall íþrótta-
maður í gagnfræðaskóla. Eitt árið
vann hann þjónustuverðlaun Kiw-
anisklúbbsins. Hann talaði mjög
hratt, en lágri og þýðri röddu, sem
var samt þrungin krafti, stundum
ógnvekjandi krafti.
Eiginkona hans, Candy að nafni,
var frá Tennesseefylki. Hún var
smávaxin og aðlaðandi og geysilega
gáfuð stúlka, sem fékk yfirleitt al-
drei annað en ágætiseinkunnir. Yf-
irvöld Kentfylkisháskólans buðu