Úrval - 01.06.1971, Blaðsíða 115
IIVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
113
borg, er notað var sem sprengju-
verksmiðja.
Alræmdastur allra héraðssendi-
fulltrúa stúdentasamtaka þessara
var Mark Rudd, sem hafði orðið
frægur, er Columbiaháskólanum var
lokað árið 1968 vegna stöðugra ó-
eirða við hann. Hann var mjög
snjall ræðumaður og fylgjandi
virkrar byltingar, jafnvel með hjálp
ofbeldis. Hann var fær um að vera
leiðtogi við hópumræður og veita
þeim hvatningu og uppörvun, sem
vildu hefja beinar aðgerðir gegn
háskólanum. Þau Mark Rudd og
Bernardine Dohrn hafa farið huldu
höfði síðan þau dvöldu í Kent.
Lagðar hafa verið fram kærur á
hendur þeim fyrir áætlanir um að
nota sprengjur í Berkeley, Chicago
og New Yorkborg.
Er þessir ofstækisfullu byltingar-
seggir stöldruðu við í Kent, hófust
stúdentamótmælaaðgerðir við hinn
trausta og virð.ulega Kent-fylkishá-
skóla í fyrsta skipti í sögu hans. Há-
marki náðu aðgerðir stúdentasam-
taka þessara gegn Kentfylkisháskól-
anum þ. 8. apríl 1969, þegar Erick-
son og menn hans skipulögðu mót-
mælafund um hádegisleytið fyrir
utan byggingu stúdentaféiags há-
skólans og báru fram hinar frægu
kröfur sínar, fjórar talsins: 1) Lokið
1 i ðsforingj aþj álfunarstöð varaliðsins
við háskólann, 2) Lokið Vökva-
kristallastofnuninni,* 3) Lokið
Glæparannsóknarstofnun Norðaust-
ur-Ohio, 4) Hættið við þjálfun há-
skólalögregluliðsins.
Þeir ákváðu að bera sjálfir fram
þessar kröfur sínar í skrifstofu há-
skólaráðsins í aðalskrifstofubygg-
ingu háskólans. Þeir þrömmuðu
þangað undir Vietcongfána. Sumir
úr hópnum æddu í gegnum kennslu-
stofur og æptu með fyrirlitningar-
rómi það kjörorð, sem stúdentasam-
tök þessi álitu venjulega háskóla-
stúdenta fara eftir og þau lögðu
þeim í munn: „Þú skalt vinna, læra,
komast áfram, drepa!“
Háskólalögregluliðinu hafði verið
gert aðvart um mótmælagöngu
þessa. En mótmælendur voru komn-
ir inn í skrifstofubygginguna, áður
en háskólalögreglumönnunum hafði
tekizt að læsa hurðunum og styrkja
þær. Svo hófust alvarleg áflog, og
að minnsta kosti sex stúdentar úr
samtökum þessum réðust á háskóla-
lögreglumenn. Rick Erickson og
fimm aðrir voru handteknir og látn-
ir koma fyrir rétt. Fjórir þeirra urðu
að sitja sex mánuði í fangelsi.
Sjá má af þessu, að viðbrögð yf-
irvalda háskólans einkenndust af
ákveðni og flýti. Ráðamenn skólans
gerðu allt hugsanlegt til þess að aga
einstaka meðlimi stúdentasamtaka
þessara, sem gripið höfðu til of-
beldisaðgerða, og þeir gengu jafn-
vel skrefi lengra en áður og bönn-
*Vökvakristallastofnunin er deild
við 'háskólann, er hefur með höndum
rannsóknir, sem styrktar eru af rikis-
st.iórninni. Það var ranglega álitið I
aðalstöðvum Samtaka lýðræðisþjóð-
félagssinnaðra stúdenta í Chicago, að
vökvakristallar hefðu verið notaðir
við framleiðslu hitamælingatækja,
sem notuð hefðu verið til hess að
finna Che Guevara, byltingarforingj-
ann frá Kúbu, í fjöllum Bolivíu. Þar
eð Guevara var ein af het.jum sam-
taka þessara. settu bau Vökvakrist-
allastofnunina á listann yfir þá' aðila,
sem sóknin skyldi beinast gegn.