Úrval - 01.06.1971, Blaðsíða 95
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
93
að knattspyrnuliði skólans eins og
köttur að mús. (Á einu eymdar-
tímabilinu tapaði háskólinn 39 leikj-
um í röð, og algeru lágmarki var
náð árið 1932, þegar liðið fékk ekki
eitt stig). Það var reynt að ráða
bót á bílastæðaskortinum með
strætisvagnaþjónustu á vegum stúd-
entanna sjálfra. Og þannig er unnt
að komast til allra háskólabygging-
anna frá bílastæðum, sem eru í
nokkurra mílna fjarlægð frá há-
skólasvæðinu. Með sömu vögnum
er líka hægt að komast inn í bæinn,
sem teygir sig í kringum háskóla-
svæðið.
Og þegar skólinn varð skyndilega
frægur um gervallan heim þessa
helgi í maí 1970, hafði hann vaxið
úr „pínulitlum skóla í pínulitlum
bæ“ upp í geysistóran hugvísinda-
háskóla, sem hefur á að skipa næst-
um þúsund fastráðnum kennurum,
auk mörg hundruð aukakennara og
aðstoðarkennara. Blaði maður í
eldri eintökum af hinu prýðilega
stúdentadagblaði skólans, „The
Daily Kent Stater“, sést fljótt, að
hann gerir miklar kröfur og að
menningarástand er þar á háu stigi.
í fyrsta blaðinu árið 1970 er til-
kynnt um komu leikflokks, er sýna
muni leikritið „Rosencrantz og Gu-
ildenstern eru dauðir“, og eru með-
al leikara tveir leikarar, sem léku í
leikriti þessu í New York. í öðru
blaði er lýsing á hljómleikum, sem
spænski gítarleikarinn Andrés Se-
govia hélt í skólanum. Á hinni ár-
legu málverkasýningu í háskólan-
um voru sýnd listaverk eftir Jack
Beal ,Ben Cunningham, John Ferr-