Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 11
Hundraðatal á jörðum.
11
Að fornu liöfðu íslendingar tvenns konar verðmæla,
annar var alinin, sem enn er verðmælir hjer á landi, en
hinn er eyririnn, sem nú er allt annar, en þá var.
1. Alin (öln) var talin í vaðmáli, en 120 álnir gerðu
hundrað. »[>cssi reikningsmáti er afarforn, og hefur alla-
jafna haldist á íslandi og er þar enn í gildi. A sögu-
öldinni var hann þó lítt hafður, er um stór fjegjöld var
að ræða.«
2. Eyrir var hinn verðmælirinn; 8 aurar gerðu
mörk og 120 aurar eða 15 merkur gerðu hundrað.
Eyririnn var tvenns konar, verðeyrir og eyrir silfurs, og
voru þeir mismunandi á ýmsum tímum.
A. Verðeyrir.
Einn verðeyrir var 6 áinir vaðmáls eða sex álna
eyrir. Sex álna eyririnn var kallaður lögeyrir, því að
svo var rfiælt ílögum.1 2 *) Eptir því var mörk verðaura
48 álnir vaðmáls, en hundrað verðaura 720 álnir
vaðmáls. Auk lögaura höfðu menn og aðra aura. pann-
ig töldu menn í 12 álna aurum,4) 10 álna aurum og 9
álna aurum. En manna á meðal gengu (einkum á Suð-
urlandi) bæði á 12. og 13. öldinni mestmegnis þriggja
álna aurar, þótt alþingi hefði aldrei samþykkt slíka aura.
Eptir því var mörk verðaura að eins 24 álnir vaðmáls,
en hundrað verðaura 360 álnir vaðmáls.
1) Grg. Ia. 130. Ib. 141, 192. II. 61, 261.
2) Dr. Valtýrgeturþess, að „klerkarnir, som stundum þóttu nokk-
uð ágengir, liafi stundum talið í tólf álna aurum allt fram á
13. öld (sbr. Dipl. ísl. I. 420).“ En hjer verð jcg að taka
svari klerka. Á þessum stað er eigi að ræða um 12 álna
aura, heldur er sagt, að tólf aurum megi leysa kúgildi. Kú-
gildi er þar eigi metið hundiað, heldur að eins 12 sex álna
aura eða 72 álnir.