Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 123
Menntun barna og unglinga.
123
guði gerð, að hún getur fullnægt þessu, ef hún kann að
velja hið rjetta, eða eins og skáldið segir:
guði að treysta, hlekki hrista,
hlýða rjettu, góðs að bíða.
J>að eru tveir straumar, sem koma hingað til lands.
Annar kemur frá löndum Skrælingjanna og færir okkur ís
og dauða, en hinn kemur frá landi menntunar og fram-
fara, vermir landið og vekur líf og fjör hjá mönnum og
málleysingjum. pessir straumar eru háðir lögum náttúr-
unnar. En það eru líka tveir andlegir straumar hjer á
landi; annar kemur frá landi sjerplægninnar og tortryggn-
innar, hann hefur í för með sjer andlegan kulda og and-
legan dauða. Hinn kemur frá iöndum siðgæðis og bróð-
urkærleika og hefur í för með sjer menntun og menningu,
velsæld og vellíðun. ['essir straumar eru háðir okkur
sjálfura.
Trú og menntun eru hin sterkustu öfl í lífi sjerhverr-
ar þjóðar, og þar eru hinir æðstu og mestu siðmenning-
arstraumar heimsins.
f>að getur verið, að sumir menn hjer á landi óski,
að kristin trú hefði aldrei komið hingað til lands og að
íslendingar væru heiðingjar fram á þennan dag. En for-
feður vorir voru á annari skoðun. f>eir tóku greiðlegar á
móti kristinni trú og siðmenningarstraumum hennar, en
dæmi eru til í nokkru öðru landi.
f>að getur einnig verið, að ýmsir óski, að íslendingar
geti aldrei sest á bekk með hinum menntuðu þjóðum, og
gjöri sitt til þess að bægja siðmenningarstraumum mennt-
unarinnar frá þessu landi. En ef slíkir menn ráða hjer á
landi, þá er hætt við því, að einnig verði yfirsterkari hinn
kaldi straumur sjerplægninnar, tortryggninnar og þeirra