Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 145
Dómstólar og rjcttarfar.
145
stefnuvottana birta hann inálspörtunum, en venjulegast er,
að sá sem vinnur málið, fær útskrift af dóminum, og læt-
ur birta mótparti sínum hann. Fullnustufrestur dómsins
fer strax að líða frá birtingunni.
Rjettargjöld eru þessi: fyrir stefnu 50 aurar, fyrir að
taka málið fyrir 1 króna, og sama borgun fyrir að taka
málið upp til dóms; fyrir að yfirheyra vitni 30 aura, fyrir
hvort þeirra; fyrir gagnspurningar skal ekki greiða sjer-
staklega; fyrir að kveðja menn í rjett til skoðunargjörða
skal greiða 1 krónu og að auk 30 aura fyrir hvorn hinna
dómkvöddu manna, sama gjald skal greiða fyrir eiðfesting
gjörðarinnar; í skuldamálum, sem eigi nema meiru en 50
kr., skal að eins greiða helming þessara gjalda; gjöld þessi
renna í landssjóð. Auk þessa verður hvor sá málsparta,
er beðið hefur um rjettarhaldið, að borga rjettarvottum 50
aura hvorum, og dómaranum ferðakostnað eptir reikningi,
en enga dagpeninga; amtmaður úrskurðar reikninginn, ef
ágreiningur verður.
Gjafsókn fyrir hjeraðsdómi, annarstaðar en í Eeykja-
vík, veitir amtmaður, og fá hana snauðir menn, sem fá-
tæktarvottorð hafa frá hlutaðeigandi sveitarstjórn og sókn-
arpresti, ef málstaður þeirra virðist vera góður; gjafsóknin
nær eigi að eins til aðalmálsins, heldur og til vitnaleiðslu
og annara dómsstarfa, sem afþvíleiðir; gjafsóknarhafanda
er sjaldan skipaður málfærslumaður, heldur verður hann
að reka mál sitt sjálfur, og er þá gjafsóknin aðallega fólg-
in í því, að hann er laus við að greiða rjettargjöld, en
falli málið á mótpart hans, og hann er dæmdur til að
greiða málskostnað, þá skal hann einnig borga þau rjett-
argjöld, sem gjafsóknarhafandi átti að greiða.
2. Einkalögreglumál. Enda þótt tilskipun 15.
Lögfrœðingur. IY. 1900. 10