Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 107
Menntun barna og unglinga.
107
Nú á tímum eru allar þjóðir komnar á hærra stig,
en áður var, í iðnaði, landbúnaði, fiskiveiðum, verslun og
siglingum o. sv, frv., en þetta heimtar meiri liæfileika,
meiri þekkingu og siðgæði. Áður höfðu meðlimir þjóð-
fjelagsins lítið að segja um landsmál, en nú hafa þeir feng-
ið kosningarrjett og á þann hátt fullkomna hlutdeild í
lagasetningu, fjárveitingum og stjórn landsins. þ>etta
heimtar einnig meiri hæfileika, meiri dómgreind og þekk-
ingu.
í>egar heimtuð er meiri vinna af hestinum, þá þarf
hann betra fóður. J>egar heimtuð er af meðlimum mann-
fjelagsins meiri andleg vinna, þá þarf að veita þeim meiri
andlega næringu og gjöra anda þeirra hæfan til þess, að
fullnægja þeim kröfum, sem gerðar eru. |>að er óhætt að
fullyrða, að það getur eigi gengið, eins og það hefur geng-
ið. »|>að er svo bágt að standa í stað, því mönnunum
munar annað hvort aptur á bak ellegar nokkuð á leið.<«
þ>jóðfjelagið verður að heimta, að meðlimir þess geti
fullnægt kröfum tímans. |>ess vegna er það, að allar
sannlega siðaðar þjóðir hafa lögleitt skólaskyldu, og að
það er nú viðurkennt hjá öllum slíkum þjóðum, að al-
mennir skólar þjóðarinnar, er byggjast á skólaskyldu, sjeu
lífsskilyrði fyrir ríki nútímans.* 1)
Hjá siðuðum þjóðum er skólaskylda nú á tímum
venjulega frá 6 til 14 ára aldurs, en í raun rjettri er þetta
of stuttur tími, því að börnin geta gleymt miklu af því,
sem þau hafa lært, þangað til þau verða fulltíða ; þess vegna
er svo sumstaðar í þeim löndum, sem lengst eru komin,
1) Petersilie, Das öffentliche Unterrichtswesen. Leipzig. 1897.
I. bls. 4 og 9.