Lögfræðingur - 01.01.1900, Blaðsíða 75
Dagsverk til prests.
75
víni og bakstri og þeim að veita alla skyldu fyrir ekkert,
svo sem hinum öðrum, sem gjalda tolla og tíundir, þær
á eru settar og gjaldast eiga til kirkna og kennimanna.
Nú af því það stendur svo skrifað: verkamaðurinn er verður
sinna launa, [þá er það tilheyrilegt,') að menn sýni sínum
sálusorgurum og kennimönnum nokkurn góðvilja fyrir alla
þjónustu og ómak, þá er það svo til skikkað og sett alls
staðar í sveitum, að þeir menn, sem enga tíund gjöra,
og líka hinir, sem ekki eru í skiptitíund, skuli vinna hjá
presti einn dag á sumar í hans töðum og engjum1 2) eða
annari þarflegri þjónustu, þá hann til segir. petta er ekki
útlát nje stór þvingun. En sjeu nokkrir svo óhlýðnir eða
illgjarnir, að þeir vilja þetta ekki gjöra, þá þarf prestur
ekki framar, en hann vill, þeim að þjóna eður þeirra fólki,
heldur má hann þá útsetja og lykja frá þeim öðrum, sem
í góðum skilum eru, því slík óvild, óhlýðna og óþakklæti
er ekki vel líðanleg. Hjer eptir bið jeg, að allir öreigar
og þeir í skiptitíund ekki eru viti sig að rjetta. Datum á
Hólum 16. marts.3)
1) Lbs. hefur: og kongsins ordinantia segir, að þeir menn, sem
enga tíund gjöra, skuli vinna presti einn dag í slætti, þá
hann vill þeim til segja. í 18. artikula skipar kongurinn, að
það sje tilheyrilegt.
2) Lhs. bætir við: en búðarmenn í róðri.
3) í Lbs. eru þessar síðustu málsgreinír svo: Hjer eptir viti
sig allir að rjetta, sem litla tíund gjöra. Datum á Hólum
leikum sem lærðum hjáverendum. Anno 1606. Guðbrandur
þ>orlákson.