Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2014, Blaðsíða 43
Viðhorf grunnskólanemenda á Islandi og í Finnlandi til tækni og námsgreinarinnar hönnunar og smíði
landi og í Firmlandi til tækni og til náms-
greinarinnar hönnunar og smíði.
í þessari grein verður fjallað um við-
horf 11 og 13 ára nemenda á íslandi og í
Finnlandi til tækni og námsgreinarinnar
hönnunar og smíði og það hvort munur
sé á viðhorfum nemenda í löndunum
tveimur. Fyrst verður fjallað um mælingu
viðhorfa og hliðstæðar rannsóknir. Síðan
verður fjallað um rætur uppeldismiðaðrar
hönnunar- og smíðakennslu og gerð grein
fyrir þróun námsgreinarinnar á íslandi
og í Finnlandi. Þar næst verða aðalnám-
skrár grunnskóla í Finnlandi og á íslandi
í hönnun og smíði bornar saman. Þá er
gerð grein fyrir spumingakönnuninni og
meginniðurstöður hennar birtar. Loks eru
niðurstöður rannsóknarinnar ræddar og
ályktanir dregnar.
Viðhorf og mæling viðhorfa
Viðhorf er vítt hugtak sem hefur verið skil-
greint á mismunandi hátt. Viðhorf hafa t.d.
oft verið skilgreind sem tilfinningabundin
félagsleg sjónarmið (Gleitman, 1994) eða
skoðanir sem tengjast sálfræðilegum til-
hneigingum (Eagly og Chaiken; 1993;
Albarracin, Zanna, Johnson, og Kumkala,
2005; Garmire og Pearson, 2006). í þessari
rannsókn tengist hugtakið viðhorf þekk-
ingu gmnnskólanemenda á tæknilegum
fyrirbæmm sem aftur tengist viðhorfum
þeirra til námsgreinarinnar hönnunar og
smíði.
Algengt hefur verið að meta viðhorf
nemenda með spurningalistum sem þeir
svara með því að staðsetja sig á ákveðnum
mælikvarða sem sýnir hversu sammála
eða ósammála þeir em tilteknum full-
yrðingum. Spurningalistar eru forprófaðir
og þróaðir þannig að þeir mæli sem best
það sem skoða á (de Vries, 1988). Þessi að-
ferð hefur þó verið gagnrýnd af nokkrum
fræðimönnum (Bennett, Green og White,
2001; Gardner, 1995; Osborne, Simons og
Collins., 2003) þar sem hugsanlegt er að
slík athugun sýni ekki fyllilega hvað nem-
endum býr í brjósti.
Tækni og tæknifræði er svið sem til-
heyrir bæði drengjum og stúlkum. Gera
má ráð fyrir því að þeir nemendur sem
hafa jákvætt viðhorf til greinar eins og
hönnunar og smíði hafi áhuga á greininni
(Bloom, Bertram og Krathwohl, 1964).
Einnig má ætla að nemendur sem hafa
jákvætt viðhorf til tækni hafi öðlast aukið
tæknilæsi með námi í hönnun og smíði.
Af þessu leiðir að mikilvægt er að gera
tækninni góð skil í námi nemenda.
Fjöldi mælitækja hefur verið þróaður
til að mæla viðhorf til tækni (Garmire og
Pearson, 2006). Með tilliti til aldursstigs
þátttakenda hentaði hér að nota þætti úr
PATT-mælitækinu (e. Pupils' Attitudes
Towards Technology Instrument) sem
samanstendur af fullyrðingum á fimm
stiga mælikvarða (Bame, o.fl., 1993).
Síðan 1984 hafa all nokkrir rannsakendur
kannað viðhorf nemenda til tækni með
PATT-mælitækinu sem fyrst var notað í
Hollandi.
Fyrri rannsóknir
Ekki finnast margar rannsóknir sem gerð-
ar hafa verið á viðhorfum grunnskóla-
nemenda til námsgreinarinnar hönnunar
og smíði að undanskildum nokkrum rann-
sóknum sem styðjast við PATT-staðalinn
41