Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2014, Blaðsíða 90
Vanda Sigurgeirsdóttir og Jakob Frímann Þorsteinsson
gagn þeir telja sig hafa haft af námi sínu
og nota niðurstöðurnar við stefnumótun
og endurskoðun á náminu. Þremur rann-
sóknarspurningum er ætlað að afla þess-
ara upplýsinga og þær eru: Hver eru við-
horf brautskráðra nemenda til námsins í
tómstunda- og félagsmálafræði? Hvernig
hefur námið nýst nemendum í lífi og
starfi? Og: Hvernig hefur námið nýst sem
undirbúningur undir frekara nám?
Aðferð
Þátttakendur
Rannsóknin tók til allra nemenda sem
brautskráðust með BA gráðu í tómstunda-
og félagsmálafræði frá Kennaraháskóla ís-
lands og Háskóla íslands á árunum 2005-
2012, samtals 96 einstaklinga. Ekki náðist
þó í sjö einstaklinga og voru þátttakendur í
rannsókninni því 89, 25 karlar og 64 konur.
Af þeim svöruðu 72 spurningalistanum.
Meirihluti þátttakenda var í fullu starfi eða
í hlutastarfi, eða 85% þegar rannsóknin fór
fram. Þá voru 7% eða fimm einstaklingar
í atvinnuleit og 13% voru í fullu námi eða
hlutanámi. Flestir þátttakenda, eða 73%,
voru í störfum sem tengjast frítímanum
með einum eða öðrum hætti, til að mynda
sem verkefnastjórar, frístundaráðgjafar
eða forstöðumenn. Þá voru 15% í uppeld-
istengdum störfum, eins og kennslu eða
náms- og starfsráðgjöf. 12% þátttakenda
störfuðu við annað, svo sem sjómennsku,
búskap, bókfærslu og heilun. Flestir tóm-
stunda- og félagsmálafræðingar virðast
því skila sér í störf á þeim vettvangi sem
þeir menntuðu sig til.
Námið í tómstunda- og félagsmálafræði
hefur tekið töluverðum breytingum á þeim
árum sem það hefur verið við lýði. Því er
mikilvægt að hafa það í huga að þegar
þátttakendur í rannsókninni leggja mat á
námið og gagnsemi þess eru þeir ekki allir
að leggja mat á sama námið, heldur það
nám sem þeir stunduðu hver og einn.
Mælitæki
Við rannsóknina var notaður spurn-
ingalisti sem fenginn var hjá Félagsvís-
indastofnun Háskóla íslands. Sá listi var
þýddur og staðfærður af starfsmönnum
stofnunarinnar og byggist á spurninga-
lista sem ber titilinn Destination of leavers
from Higher Education en HESA (The
Higher Education Statistics Agency) hefur
þróað hann til að afla gagna um fólk sem
lýkur háskólanámi í Bretlandi. Eins voru
fengnar spurningar úr listanum National
Student Survey sem einnig er breskur. Þar
að auki var nokkrum spurningum upp
úr stefnu Háskóla íslands bætt við. Þessi
spurningalisti var lagður fyrir fyrrverandi
nemendur við Háskóla íslands sem braut-
skráðust árið 2010 (Ásdís Aðalbjörg Am-
alds o.fl., 2012). Við þann spurningalista
var bætt nokkrum spurningum er snúa
beint að náminu í tómstunda- og félags-
málafræði. í spurningalistanum em 29
spurningar, flestar lokaðar en fjórar eru
opnar og ellefu em hálfopnar. Unnið var
úr spurningalistanum í SPSS og Excel.
Framkvæmd
í júní 2012 var ráðist í að safna netföngum
þátttakenda með því að senda skilaboð á
Facebookhóp tómstunda- og félagsmála-
fræðinga. Þetta skilaði 59 netföngum. í
88