Skírnir - 01.01.1855, Page 99
Tyrkjastríðið.
FRJETTIR.
101
anum á tveim stö&um. Englendingar notu&u sjer ekki þenna sig-
ur; bar þa<b til, afe þegar Hall lagbi frá um kvöldiö, þá komu
honum orb Napiers aö koma til flotans, er þá lá enn í Barreyjum.
þegar Hall kom og sagfei þeim, hversu farib hafbi, þá ljet Napier
og Perseval, sem stýrbi flotanum frakkneska, þegar draga upp akk-
eri og stefndi öllum flotanum til Kronstadt til ab sjá sig um. Allur
floti Rússa lá inn á höfninni fyrir innan vígib. Láu Englendingar
og Frakkar þar í nokkra daga og gátu ekki .^krækt í” herskip Bússa,
J)ví þau hreifíiu sig ekki úr stafe. þab var reyndar bæbi illt og
broslegt, ab sjá Englendinga og Frakka liggja fyrir utan Kronstadt,
og komast ekki lengra, bæbi sakir grynninga og einkanlega vegna
þess, ab kastalinn er svo rammgjör, en sundib svo mjótt inn ab fara,
ab sá sem vildi sækja kastalann, yrbi ab láta skjóta 2 eba 3 af skip-
um sínum í kaf, ábur en hann gæti hugsab til ab sækja ab meb
alefli; en hins vegar lágu Bússar á skipum sínum fyrir innan vígib
og þorbu ekki ab kvika, líkt og þegar mús flýr undan góbum veibi-
ketti inn í holu og húkir þar. Bússar hafa þó 18 skip vib Kron-
stadt og Sveaborg, og þau flest stór. þar dvöldu þeir Napier og
Parseval nokkra daga, og þótti ekki árennilegt, enda vantabi þá land-
her til ab rábast á kastalana landmegin.
I mibjum júlímánubi sendi Napóleon 10,000 fótgöngulibs frá
Boulogne til libs vib þá Parseval og Napier. Fyrir libi þessu var
sá mabur, er Baraguay d’Hilliers hjet; hann hjelt libi sínu til móts vib
bandaflotann, en síban sigldu þeir allir foringjarnir samflota til Alands-
eyjanna. Fótgöngulibinu var skotib á land, og nú var setzt um kast-
alann. 13. ágúst rjebust Frakkar á virki þab sem næst þeim var;
þeir voru svo skjótir ab hlaba skotgarba sína, ab þeir vora fullbúnir
á einum degi, og svo var skotgarburinn vel hlabinn, ab þeir fengu
tekib virkib næsta dag og misstu engan mann, en 2 menn urbu
sárir. Hinn 15 s. m. tóku Frakkar annab virkib; síban snjeru
Frakkar á móti kastalanum, og skutu drjúgum skörb í múrinn; sam-
stundis lögbu Englendingar og Frakkar 9 skipum ab kastalanum og
skutu holkúlum inn í kastalann. Englendingar höfbu þá hlabib
skotgarb á landi og skutu þaban á kastalann. Um kvöldib gafst
kastalinn upp, og varnarlibib gekk á nábir þeirra Napiers, Baraguay
d’Hilliers og Parsevals; þab voru 2000 manna, foringi þeirra hjet