Óðinn - 01.01.1936, Page 26

Óðinn - 01.01.1936, Page 26
26 Ó Ð I N N 17. )uni fyrir mörgum árum. I. Kaldur hafði Kára óður kyrking sett í vorsins gróður; samt var bjartur sólskinsdagur. Seytjándi júní rann upp fagur. Flögg og veifur flöktu’ á stöngum, fólkið streymdi niður í bæinn, til að heyra’ í sigursöngum sungið lof, er helgar daginn; lof, sem allir einum rómi undir taka. Þjóðar dómi skal nú lýst. í landi settur lýðs og sögu hæstirjettur. Það, sem mælir þjóðar tunga, það skal dæmast satt og rjett, sagnablöðum fornum flett fyrir bæði gamla og unga, rifja upp alt, sem almenningur undir best og ljúfast syngur. Vfir djúpið andans kyrra orðin þau, sem vöktu trú hjer í fyrra’ og hittifyrra, heyrast skulu einnig nú. Allra fylgi er það besta. Ef það fæst ei, þá er næst, að reyna til að fá sem flesta. Fyrir því skal bjóða hæst. Þess skal gætt, að þjóðarvilja þegar vekja’ og skapa ber, löngum mesta listin er, að leiða þá, sem ekkert skilja. II. Þar sem múgur þjettast saman þyrpist, fyllir götu og torg, ræðupalla fyrir framan flokkanna í miðri borg, heyrast gjalla húrra-ópin hátt og snjalt, því kepst er við að ná í stærsta heyrenda’ hópinn, heilla til sín fylgilið. Eitt má heyra á öllum pöllum, alstaðar er nefndur ]ón, og alstaðar með einum tón, og hlustað á hans hrós af öllum. Hann einn á hlut í allra vonum, allir segjast fylgja honum, og frá rjettu ekki víkja, þótt aðrir vilji stefnu hans svíkja. III. Hjer er ræða’, er heldur einn* frelsisgarpur, flokks síns hetja, framgjarn, mælskur, til að hvetja heyrendurna, hreinn og beinn: Þessi dagur, þjóðin mín, þínum besta og mesta syni, ]óni heitnum Sigurðssyni, helgast. Sá var hetjan þín. Hann þitt merki hóf og setti hátt, og fyrir þínum rjetti barðist alla æfi sína. Er hann skýrði sögu þína, fann hann öll hin rjettu rök, rakti og skýrði hverja sök, sýndi’, að fornu sáttmálarnir skólinn á einnig mikla og glæsta sögu að baki. Hann var stofnaður árið 1388 og mun hafa starfað sleitu- laust síðan, nema á árunum 1794 — 1814, eða á ár- unum, sem Köln var undir frönskum yfirráðum. Á síðari árum hefur verið hörð samkepni og allmikill nágrannakrytur milli háskólanna í Köln og í Bonn. í Köln mætast spor hins gamla og nýja tíma, eins og reyndar við má búast í borg, sem á jafnlanga sögu að baki, og gcfur það borginni einkennilegan og skemtilegan blæ. Gleðskapur og skemtanir eru þar miklar. Eru hinar svonefndu kjötkveðjuhátíðir mjög frægar, og eru ekki taldar standa neitt að baki hinum alþektu kjötkveðjuhátíðum í Nissa. Gleðskapur þessi er alt af haldinn, rjett áður en langafastan byrj- ar. Eigi er með öllu laust við, að sumum Norður- landabúum finnist gleðskapur þessi vera nokkuð ærsla- fenginn og bera vott um barnslegt lundarfar. En Rín- lendingar eru þannig, þeir eru ljettlyndir og njóta líðandi stundar. Þeir eru ástúðlegir og viðfeldnir í viðmóti, en eigi að síður ötulir og duglegir athafna- menn; enda hefur Köln um langan aldur verið fræg fyrir margs konar iðnað, einkum hin frægu »Kölnarvötn«. Það er víst óhætt að fullyrða, að Köln er ein af þeim borgum, sem flesta langar til að sjá aftur, sem einu sinni hafa komið þangað. ®®®

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.