Óðinn - 01.01.1936, Page 44

Óðinn - 01.01.1936, Page 44
44 Ó Ð I N N Arfurinn. i. Hin borgaralegu lög í öllum menningarlöndum tryggja afkomendum sömu foreldra jafnan rjett til arfs, hvort sem er góss eða gull, og þessi rjettur nær til afkomenda í fleiri liðu og til hliðarlína ætt- anna. — En náttúran sjálf þekkir ekki þennan rjett, og fer aðrar leiðir. — Hinn náttúrlegi arfur, er börnin hljóta frá foreldrunum, er misjafn; ætíð meira eða minna, því engar tvær lífverur fæðast alveg eins. — Það hafa vísindin sannað, eins og síðar verður komið að í þessu erindi. — Náttúran þekkir ekki til mann- úðar þeirrar, er mennirnir hafa á lofti haldið um margar aldir. — Börnin, sem setjast við lífsins borð, eru ærið misjöfn. — En það ætti öllum að vera ljóst, að sá arfur, sem menningarríkin hafa skapað og lögin vernda, er næsta þýðingarlítill, — og líka mjög umþrættur — móts við hinn náttúrlega arf, sem heita má, að látinn hafi verið afskiftalaus að þessu, af löggjöf og stjórn þjóðanna. — En það er löngu kunnugt, að börnin fá að erfðum frá foreldri sínu — þar með taldir ættmenn — það frumeðli og hæfileika, sem þau leggja með út í lífið. — Ef það hefur miklu að miðla — foreldrið — af andlegu og líkamlegu atgervi, má ganga út frá því vísu, að börnin erfi það öll, með einu eða öðru móti; þó að það sje enn hulið — eins og svo margt annað í náttúrunni — fyrir vísindunum, á hvern hátt það verði. — En sú skoðun mun rótfestast enn meir, hjá þeim mönnum, sem við þessi vísindi fást, að það, sem aðallega marki framkomu manns og framgang í lífinu, sjeu þau eðlis- einkenni, sem mönnum eru í blóð borin í móðurlífi. — Hjer á undan er dæmið tekið af vel gerðu for- eldri; en alt að einu má taka það úr andstæðri átt. Margir menn og konur eru svo fátæklega út búin af náttúrunnar hendi, að þau hafa engu atgervi að miðla afkomendum sínum. Margir eru fyrir fram dæmdir til tortímingar, áður en þeir fæðast, t. d. fábjánar og vanskapningar lil sálar og líkama. Margir fæðast með næman móttækileika fyrir ýmsa sjúkdóma, svo sem taugasjúkdóma, geðveiki, hjartabilun, ýmsa siðspillingu og jafnvel glæpi. Um það verður ekki deilt, að forfeðrum vorum, sem bygðu landið —, og þeirra forfeðrum, Iangt aftur í heiðni —, var það ljóst, að mennirnir voru ærið misjafnir og fæddust svo, og að hæfileikarnir gengu að erfðum eða fylgdu ættum. Það er kunnugt, að hin forna menning vor byggist á ættvísi og ættar-metnaði. Ari fróði getur aldrei svo neins mikil- mennis eða atgervismanns, að hann minnist ekki »hans foreldris* um leið, og sama má segja um flesta fornhöfunda vora. »Landnáma«, af mörgum talin vor frægasta bók, er því nær tóm ættfræði. Um ekkert fjalla okkar gömlu sögur meira en hvernig frjáls- borinn maður fjekk sjer kvonfang. Fyrst og fremst átti konan að vera »kynborin«, þ. e. af góðum ættum og göfugum, en svo að öðru leyti, þ. e. að ýmsu at- gervi, þurfti hún að vera góður kvenkostur. En faðir- inn, eða forráðamaður brúðarinnar, var ekki síður vandur að mannsefninu. Það mátti ekki vera neitt smámenni, hvorki að ætt nje atgervi, sem gat búist við að hreppa gott og göfugt kvonfang. — Það er engum vafa bundið, að þessi sterki straumur, sem gengur eins og rauður þráður gegn um alla fornöld- ina, a. m. k. hjá hinum germanska kynflokki, hefur eflt atgervi hans og gert hann sigursælan fram eftir öldum. En þessi ættgengisskoðun og ættarmetnaður fór út í öfgar hjá ýmsum þjóðum. Þær hjeldu sig við yfir- borðið, en gleymdu kjarnanum, svo að leiddi til úr- kynjunar, þar sem fána hins göfuga kyns var þó haldið hátt á lofti. — Hjer á landi verður ekki sagt, að öfganna gætti neitt að mun. Hjer myndaðist aldrei nein erfðbundin aðalsstjett —, þó svo liti út á Sturl- ungaöldinni að kynni að verða. En eftir það fækkaði þeim mönnum og ættum, er upp úr stóðu, og kyn blönduðust meira. Svarti dauði og aðrar plágur unnu þar mikið að. Nú á síðustu tímum eru það nýjar skoðanir og nýir straumar, sem þokað hafa þessum málum til hliðar, að minsta kosti. Hin róttæka jafnaðarkenning, eins og hún hefur löngum birst, virðist eigi hirða neitt um eða taka til greina, og jafnvel andmæla kenningunni um arfgengi. Menn byggja enn á kenn- ingum hins fræga jafnaðarmanns Roussou’s, eða trúa á þær: að mennirnir sjeu í rauninni allir jafnir, eða þyrftu ekki annað en að hverfa til náttúrunnar aftur til þess að verða það. En rúmlega hálfri öld síðar reis upp maður, sem kollvarpaði þessum kenningum um »náttúrlegan jöfnuð*. Það var Ch. Darwin. Að vísu risu upp öflug mótmæli í fyrstu gegn þessum skoðunum, eða kenningum Darwin’s, enda kollvarp- aði hún rótgrónum skoðunum, og skapaði nýja heims- skoðun eða lífsskoðun, sem hefur rutt sjer rúm fyrir áratugum, þ. e. framþróunarkenningin (Evolution — Darwinisme). Hinn risavaxni menningarstraumur, sem einlægt rís hærra og hærra með hverri kynslóð, krefst þess,

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.