Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 49

Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 49
Ó Ð I N N 49 Jakob Símonarson á Brekku við Hofsós. Fæddur 6. jan. 1864. — Dáinn 24. okt. 1935. Jakob var fæddur í Hólakoti á Höfðaströnd, og voru foreldrar hans Símon Sigvaldason, bóndi þar, og kona hans Hólmfríður Jakobsdóttir. Þeir voru bræðrasynir Sigvaldi Þorsteinsson, kaupm. á Akureyri, og Jakob, en í framætt var Jakob af merkum bænda- ættum í Skagafirði, og náskyldur þeim Sigurði málara, Sigurði Guðmundssyni, byggingameistara í Reykjavík, og Arasens-ættinni. Jakob misti föður sinn ungur. Heimilið var fátækt og systkini hans öll á ungum aldri, Varð hann því strax, unglingurinn, að taka upp harðvítuga baráttu fyrir tilveru sinni og sinna nánustu, því að hann varð þá strax að veita móður sinni alla þá aðstoð, er hann var megnugur, til þess að koma upp yngri systkinum sínum. Þurfti hann því strax á barnsaldri að leggja hart að sjer að vinna og óefað oft um megn fram. En hann var kjarkmikill og óvílinn, svo erfiðleikarnir stæltu hann, en beygðu ekki. En þetta mun jafnframt hafa mótað skapgerð hans til meira harðlyndis en annars hefði orðið. Jakob ól svo að kalla allan aldur sinn á æsku- stöðvunum. Hann var að vísu eitt ár, sem unglingur, hjá Pjetri í Hofdölum, frænda sínum, og þrjú ár austur í Þingeyjarsýslu, en annars óslitið á Höfðaströndinni. Sannaðist því á honum hið fornkveðna, að »röm er sú taug, | er rekka dregur | föðurtúna tiU. Snemma bar á tápi og atgervi Jakobs til sálar og líkama, og á óslökkvandi fróðleiksþrá, en ástæður voru óhagstæðar til þess að fullnægja henni. En um það, hve mikið var í manninn spunnið, ber það best vitni, að rúmlega tvítugur að aldri var hann ráðinn sem ráðsmaður til sjera Þorleifs á Skinnastað. Taldi Jakob sig hafa haft mjög gott af veru sinni hjá þeim merka mentamanni og fræðaþul, og tókst með þeim sjera Þorleifi hin kærasta vinátta, sem hjelst meðan báðir lifðu. Þar eystra kvæntist Jakob Maríu Þórðardóttur, sem enn er á lífi í Reykjavík, og eignuðust þau einn son, Vilhelm, cand. phil. í Reykjavík. Árið 1890 reisti Jakob sjer lítið, en snoturt, íbúðar- hús á bakkanum norðan við Hofsós, rjett ofan við sjóinn, og með höfnina og kauptúnið rjett sunnan við. Hofsós-bakkinn stendur hátt, og er þaðan hin feg- ursta útsýn yfir Skagafjörð, sem þaðan blasir við í hinni stórfenglegu fegurð sinni. Jakob varð fyrstur manna til að nema þarna land, því hann tók þegar dálitla landspildu til ræktunar kring um bústað sinn. Landið var magurt og gróðursnautt, en honum tókst á fáum árum að breyta því í grösugt og fagurt tún, og þarna bjó hann alla stund síðan. Jakob var óvenjulegur maður fyrir margra hluta sakir. 011 verk ljeku í höndum hans, hvort heldur til lands eða sjávar. Hann var afburða sjómaður, og stund- aði sjó, bæði sem formaður og háseti, um fjölda mörg ár. Hann var smiður ágætur, bæði á trje og járn, og smíðaði jafnt hús sem báta, og alt með afburð- um vandað og traust, og til hvers verks var hann af kunnug- um talinn gildur tveggja manna maki, enda karlmenni að burðum. Og svo var ákafinn mikill, að oft vann Jakob 16, og jafnvel 20, stundir í sólarhring, en slík óhófleg þrekeyðsla fór að lokum með heilsu hans, og hin síðustu tíu árin var hann óvinnufær. Veikindin bar hann með þreki og karlmensku. Jakob var gáfaður í besta lagi. Minnið var óbilugt, og hjelt hann því óskertu fram í dauðann. Það var unun að heyra hann segja frá liðnum atburðum. Hann gat dregið upp svo skýrar myndir af mönnum og at- burðum þeim, sem hann sagði frá, að áheyrandinn bókstaflega sá það fyrir sjer. Hann var hagorður í besta lagi, en hafði það lítt um hönd. í orðasennu var hann harðskeyttur og markviss, þegar því var að skifta, og þótti sumum ekki gott að verða fyrir skeyt- um hans, er svo stóð á. Jakob hafði aflað sjer allmikillar og haldgóðrar sjálfsmentunar; var víðlesinn og fylgdist vel með fram til hins síðasta í öllu því, er laut að verklegum fram- kvæmdum og sjálfstæði þjóðarinnar. Fór hann ekki í neina launkofa með skoðanir sínar, hvorki á mönnum nje málefnum, því hann var maður hreinskilinn og einarður; en skoðanir hans voru ávalt bygðar á bjargi traustra röksemda. Vmsir töldu Jakob harðlyndan og óþjálan viður- skiftis. Sannleikurinn var sá, að lífið hafði farið um
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.