Óðinn - 01.01.1936, Page 74

Óðinn - 01.01.1936, Page 74
74 Ó Ð I N N honum og fjekk að vita, að hann lægi fyrir. Jeg sendi honum Kipling’s »Junglebook* til að lesa. — Á þriðja degi fann jeg piltinn uppi á þilfari, sat hann þar í stól. Svo varð hann að fara út að borðstokknum, og gekk jeg þá til hans og studdi hann; varð hann mjög þakk- látur og bað mig að fylgja sjer niður í klefa sinn. Það urðu okkar fyrstu kynni. Hann hjet Watson, Jack að fornafni, að mig minnir, og var malarason frá New-Castle. — Næsta dag var hann orðinn hress og upp frá því vorum við mikið saman. Jeg ljet hann lesa fyrir mig úr Kipling, og á kvöldin lásum við saman í enska Nýja-testamentinu. Hann varð mjer til mikillar gleði á ferðinni. Jeg kyntist líka frænda hans og síðan nokkrum fleirum. Jeg hitti þar einn svipaðan einstæðing og jeg var, af sömu orsökum. Hann var frá Belgíu, og talaii ensku enn minna en jeg. Við töluðum graut úr frönsku og var það honum fróun. — Laugardagskvöldið 29. nóvember sigldum vjer inn á höfnina í Halifax, og var þá framreiddur viðhafnarmesti miðdegisverðurinn, skilnaðar-miðdagur; hjá hverjum manni var lagður skrautprentaður rjetta- seðill, með mynd af skipinu, og var það minningar- spjald. Landganga áfti að byrja kl. 7 um kvöldið, en svo kom auglýsing upp á auglýsinga-töfluna, að yfir- völdin í landi vildu ekki taka á móti oss fyr en kl. 7 næsta morgun, og yrðum vjer að gista í skipinu um nóttina. Mjer þótti það goft. Það var og auglýst, að kl. 6 næsta morgun gætu þeir, sem vildu, fengið árbít í borðsalnum. — Maturinn á leiðinni allri var inni- falinn í farseðlinum, svo að enga reikninga þurfti að greiða. Farþegarnir höfðu frjáls samskot og gáfu sameiginlegt »þjórfje« þjónustufólkinu og hljómsveit- inni. — Við árbítinn, sem bæði var mikill og góður, var á hverjum diski skrautprentað kort, með mynd af skipinu, og á bakhliðinni skýrsla um veður og gang skipsins á hverjum degi, hve margar sjómílur það hefði farið á hverjum sólarhring, og á hvaða breiddar- og lengdarstigi það hefði verið á hverju hádegi alla ferðina. Svo var þessari sjóferð lokið og landganga hófst. Farþegar urðu nú að ganga gegn um mikinn hreins- unareld af nákvæmri skoðunargerð. Það var toll- skoðun, heilbrigðisskoðun o. s. frv. Þetta tók svo langan tíma, að ekki komst nema rúmur helmingur farþega með morgunlestinni kl. 8, og urðu hinir að dvelja allan daginn í Halifax, þar eð engin lest önnur fór vestur í land þann dag. Mjer þótti slæmt, að, Watson, ungi vinurinn minn, hvarf mjer í þrönginni, og gat jeg því ekki kvatt hann. Frá Halifax til Winnipeg. Nú hafði jeg þá stigið fótum mínum í nýja heims- álfu. Þótti mjer það góðs viti, að jeg byrjaði nýtt kirkjuár um leið og jeg kom til Ameríku, því þessi fyrsti dagur minn þar var fyrsti sunnudagur í Adventu, þann 30. nóv. — En fyrst varð jeg nú að koma mjer fyrir einhvers staðar. Jeg bar farangur minn og var hann talsvert þungur, og varð jeg því fegnastur, er jeg rjett við höfnina kom auga á hótel, og fór þar inn og fjekk mjer herbergi. Jeg sá þegar í stað, að þetta mundi ekki vera sjerlega fínt hótel, en hvað gjörði það? Herbergið var þokkalegt og mjög ódýrt. Þegar jeg var búinn að koma mjer fyrir, var klukkan að verða 9. Jeg fór svo út að leita mjer að kirkju. Halifax er allstór bær, mjer var sagt þá með nál. 50 þúsundum. Hann liggur fyrir botni fjarðarins og upp hlíðina öðrumegin. Göturnar ganga þar í hlíðinni jafnhliða sjónum, og brattir þverstigir milli aðalgatn- anna. Uppi á einni aðalgötunni hitti jeg stóra og tignarlega kirkju. Jeg sá, að fjöldi barna var að streyma þar inn. Jeg fór þar inn og var mjer vísað upp á svalirnar. Jeg taldi um 300 drengja, er sátu öðru megin niðri, en jeg gat ekki sjeð nálægt því alla bekkina. Hinumegin voru smástúlkur, og virtist vera líkt um tölu þeirra og drengjanna. Barnaguð- þjónustan byrjaði; jeg fann strax að þetta var kathólsk k'irkja. Börnin sungu með miklu fjöri, og minti söng- urinn mig á V-D heima. Messan varaði í hálftíma. Mjer fanst það gott teikn, að Ameríka tók á móti mjer með barnasöng. — Svo fór jeg að ganga og rjett fyrir kl. IOV2 rakst jeg á aðra kirkju. Auglýs- ingar voru úti fyrir um messuna, að hún byrjaði kl. IOV2 og að presturinn ætlaði að tala um »hina stærstu spurningu veraldarinnar*. — Jeg gekk þar inn. Djákni mætti mjer í innri dyrunum og leiddi mig til sætis á góðum stað. Þetta var Ðaptista-kirkja. Jeg tók eftir, að á öllum bekkjunum voru »stoppaðar« dýnur, og í hólfi við hvert sæti var sálmabók og biblía. — Þar var fagurt forspil Ieikið á hljómfallegt orgel. Svo byrjaði fyrsti sálmurinn. Jeg komst við undir honum, mjer fanst hann vera valinn og hljóða upp á mig. Hann byrjaði svona: »Go, labour on! spend and be spent«, og hvert vers byrjaði með sömu fyrstu þremur orðunum. — Jeg hafði oft verið kvíðafullur út af þessari ferð, jeg kom miklu seinna en til var tekið, og hafði ekkert látið vita um komu mína. Oft hafði flogið í huga minn: En ef þeir vilja nú ekki taka á móti mjer, hvað þá? — Sálmurinn setti hugrekki í mig. »Jeg er í þjónustu Guðs, hann sjer þá fyrir mjer«. Presturinn,

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.