Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 77

Óðinn - 01.01.1936, Qupperneq 77
Ó Ð I N N 77 voru að reyna að koma því aftur á. Svo fór jeg til þeirra og bauð þeim hjálp mína. Þeir urðu því fegnir. Bindin voru orðin brún af óhreinindum. Jeg tók bindin alveg af þeirn, því að jeg var svo heppinn, að hafa með mjer dálítið af sárabindum. Þeir höfðu ljót og illa gróin brunasár. Jeg batt um sárin eins vel og jeg gat, og leið þeim miklu betur á eftir. Þeir voru Þjóðverjar og höfðu verið hásetar á stóru skipi, sem brunnið hafði úti á Atlantshafi um sumarið. Jeg hafði lesið um þennan skipsbruna í blöðunum heima, en nú hef jeg gleymt nafni skipsins. Þeir höfðu svo legið á sjúkrahúsi í New Vork, og voru nú á leið til ætt- ingja vestur í Alberta. Þeir voru hálfilla til fara, því að þeir höfðu mist alt sitt í brunanum. — Nú var jeg ekki lengur einmana. Þeir voru alvörugefnir ungir menn, töluðu lítið ensku, og jeg talaði illa þýsku, en samt nutum vjer samverunnar. (Jm morguninn var lestin komin inn í Manitoba, og jeg kominn rjett að takmarki mínu, Winnipeg. Mig langaði mest til að halda áfram með lestinni, því að jeg var orðinn þar sem heima, og jeg sá líka eftir að skilja við þessa nýju vini. Jeg gaf þeim nokkra dollara, og viknuðu þeir af gleði. Jeg sagði þeim, að vjer gætum fundist aftur í himninum, ef þeir vildu halda sjer fast við Krist. Um kl. 11 árd. rann lestin inn í Winnipeg. Jeg kvaddi Þjóðverjana mína og fór út á stöðinni. Jeg hafði ekki látið neinn vita um komu mína, og hafði ekki hugmynd um heimilisfang nokkurs manns. Jeg einsetti mjer að leita einhverja Islendinga uppi, án þess að spyrjast fyrir eða líta í vegvísara. — Jeg geymdi dót mitt á stöðinni og lagði af stað beint af augum. Jeg sá að bærinn mundi liggja í ferhyrningum, því að allar götur eru þráð- beinar norður og suður, austur og vestur, með jöfn- um millibilum. Jeg hugsaði mjer að Ieita að »Fyrstu lúthersku kirkjunni*, og þar stæði, ef til vildi, nafn og heimilisfang dr. Jóns Bjarnasonar, því jeg hafði tekið eftir því í Halifax, að spjöld með nafni prestsins höfðu staðið við ýmsar kirkjudyr. Þegar jeg sá kirkju- turn einhverstaðar, fór jeg þangað, en varð fyrir nokkr- um vonbrigðum. Þegar jeg svo hafði reikað um í rúman hálftíma, sá jeg spjald yfir búðardyrum, sem gladdi mig. Það var verslun Halldórs Bardal, og gekk jeg þar inn. Stúlka var í búðinni. Jeg ávarpaði hana á íslensku og tók hún undir það. Jeg spurði eftir Bardal og sagði hún, að hann væri uppi á Iofti að borða, en kæmi bráðum ofan. Jeg tók eftir að stúlkan þúaði mig, og fanst mjer það skrítið, ókunn- ugan manninn. Svo spurði hún hver jeg væri og hvaðan. Jeg sagði henni það. — Hún fór þegar upp á loft og Bardal kom ofan, og urðu fagnaðarfundir með okkur. Hann tók mig upp til borðhalds og þar leitst mjer vel á alt, því að þar voru margir inndælir drengir. Svo fór Bardal að síma og brátt komu þeir Jón Vopni og Jón Bíldfell, og nú fanst mjer að mjer væri vel borgið. Þeir voru ekkert reiðir af því að jeg kæmi svona seint. — Þeir sögðu mjer, að jeg ætti að vera 4 daga í Winnipeg, og fara síðan suður til Banda- ríkjanna til safnaða sjera Björns Jónssonar í Minne- ota, og vera þar fram í janúar; en þessa 4 daga ætti jeg að dvelja hjá dr. Jóni Bjarnasyni, og fóru þeir með mig þangað, og sóttu um leið farangur minn á járnbrautarstöðina. Um kvöldið talaði jeg á fundi Bandalagsins og var þar margt af ungu fólki. Mjer var fagnað hið besta. — Jeg notaði þessa daga til að skoða borgina, og heimsótti nokkra Islendinga. Jeg var í kirkju næsta sunnudag hjá dr. Jóni Bjarnasyni, við morgun- messuna, en prjedikaði við kvöldmessuna kl. 7, og hafði yfirfulla kirkju. Þar kom jeg auga á ungan pilt, sem mjer þótti gaman að sjá, Sveinbjörn Jónasson, sem verið hafði í V-D hjer heima, en farið sem ungur drengur vestur um haf. Hann hafði verið mjög hændur að mjer og jeg sá mikið eftir honum, hann var svo Ijúfur og efnilegur. Nú var hann orðinn stór og mjög glæsilegur unglingur. Það urðu með okkur miklir fagnaðarfundir eftir messuna. — Jeg kveið nú ekki lengur fyrir ferðinni suður í Bandaríkin, því á laugar- daginn höfðu komið tveir menn frá Minneota, og ætl- uðu á mánudagskvöld suður aftur, og gat jeg orðið þeim samferða. Það voru þeir Gunnar Björnson, rit- stjóri og þingmaður, og kjötsölumaður Bjarni Jones; voru þeir safnaðarstólpar í Minneota-söfnuðinum, þar sem jeg átti að byrja starfsemi mína, og koma þeir mjög við Ameríku-sögu mína. Þetta voru nú mín fyrstu kynni af Winnipeg. Bandarikjaferðin. A mánudagskvöldið lagði jeg af stað frá Winnipeg, í fylgd með þessum tveimur nýju vinum. Þeir voru hinir skemtilegustu menn og sögðu mjer margt frá Minneota, um fólk þar og þá sjerstaklega um frænd- fólk mitt, dætur Jóhannesar föðurbróður míns, sem dó heima haustið 1908, eins og fyr er frá sagt. Jeg hlakkaði mjög til að kynnast þessu frændfólki mínu. Jeg fjekk og að vita um börn þeirra og hafði Jó- hannes sagt mjer um það áður, en öllum nöfnum , hafði jeg gleymt, nema Oskari, sem jeg átti að láta fá gullúrið. Jeg mintist þá, að liðin voru 5 ár frá því, er hann dó, og rúmum mánuði betur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.