Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1888, Síða 37
37
Heima á íslandi varð sama ofan á. Menn vóru
þar mjög óánægðir með það, að Rask fór frá stjórn
bókmentafjelagsins og að J>orgeir var kosinn í hans
stað, en ekki Finnur Magnússon. A fundi Reykja-
víkurdeildarinnar 8. ágúst 1831 var samþykkt að
skrifa Hafnardeildinni og lýsa óánægju fundarins út
af því, að Finnur Magnússon hefði ekki verið kos-
inn. Sumir vildu jafnvel gera prófessor Rafn að
heiðursfjelaga, en Bjarni Thórarensen gat eytt
þvf1.
Deila þessi reis í fyrstu út úr litlu og ómerkilegu
tilefni, en hjer fór sem mælt er, að opt verður mik-
ill eldur úr litlum neista. Ef vjer nú reynum að líta
á hana með köldu blóði og hlutdrægnislaust, get-
um vjer með engu móti láð Rask það, þó að hann
vildi verja vin sinn og fornfræðafjelagið, sem honum
var svo annt um, fyrir árásuro, sem að hans dómi
vóru ómaklegar og' ástæðulausar. Jeg er sannfærð-
ur um, að ef einhver íslendingur eða bókmentafje-
lagið hefði orðið fyrir slíku, þá hefði Rask orðið
manna fyrstur til andmæla. Sjálfsagt hefir Baldvin
líka lagt út í þessa deilu af hreinum hvötum og
þóttst verja eigi að eins vini sína, heldur og að
nokkru leyti þjóð sína og land, þar sem hann hjelt
uppi svörum gegn Rask. En hitt verður ekki var-
ið, að það var í fyrstu óþarfa framhleypni af hon-
um, að skipta sjer af þessu máli, sem kom honum
mjög lítið við, og að honum opt hættir við að sýna
Rask ekki tilhlýðilega virðingu og verja það, sem
ekki átti meðhald skilið. Hins vegar skal jeg eng-
an veginn neita því, að Rask hafi einnig í sumum
ummælum sínum um Baldvin og um þá J>orgeir og
1) Svo segir Bjarni sjálfur í brjefi sínu til Baldvins Einars-
sonar, sem jeg áður hefi minnzt á.