Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Side 139
LÝSING O G SKÝRING Á L B S. 2574 — 2575 8vo
139
skráða ættartölu er hann rakti þenna legg. Hinsvegar mun flest annað, sem höf. skráir
hér um móðurætt sína, tekið eflir skráðum heimildum, og eru í því nokkrar villur,
sem gamlar ættartölur hafa, en nú á síðari tímum hafa verið leiðréttar. T. d. er faðir
Þorbergs sýslumanns Bessasonar ranglega talinn Hrólfsson, og Margrét kona Sigurð-
ar sýslumanns Finnbogasonar er talin dóttir Þorvarðar lögmanns Erlendssonar í stað
Þorvarðar á Eiðum Bjarnasonar. Merkilegt er hinsvegar, að höf. hefur sagt, að Gutt-
ormur faðir Lofts ríka hafi verið Ormsson, en einhver hefur síðar leiðrétt handritið
og talið Guttorm Örnólfsson Jónssonar frá Stóra-Skógi. Hér vissi Guðmundur betur
en sá, sem leiðrétti.
9. blaðið hefst á föðurætt höfundar. Er hér sjálfsagt enn um frumskráða ættartölu
að ræða. Hann rekur þar alla leið upp til Jóns handalausa Flóventssonar, langlanglang-
afa síns. Allt það, sem borið verður saman við manntalið 1703, kemur heim. Því er
ekki rétt að rengja það, að Ingveldur Einarsdóttir, langamma höfundar, sem 1703 er
75 ára í Hleiðargarðskoti í Eyjafirði, hafi verið dóttir Einars í Kálfagerði Hjálmars-
sonar úr Borgarfirði syðra Einarssonar. Hér skýrir höf. frá því, að þeir hafi verið
bræður Jón í Hlíðarhaga, langlangafi höf., og Jón í Hleiðargarði, Hallgrímssynir, og
rekur hann lítilsháttar ætt frá Jóni í Hleiðargarði, en á næstu blöðum, 10.—13. incl.,
frá Jóni í Hlíðarhaga forföður sínum.
.Á 14. blaði rekur höf. börn Sigurðar bónda á Sandhólum í Eyjafirði Hallssonar.
Hann byrjar á börnunum og gerir síðan grein fyrir föðurnum og ætt hans og þá konu
hans, sem komin var af Jóni hreppstjóra í Stóradal í Eyjafirði Jónssyni og konu hans
Herdísi Sigfúsdóttur bónda í Hvassafelli Ólafssonar. Allt ber þetta saman við mann-
talið 1703, eftir því sem saman verður borið. Höf. segir Sigfús í Hvassafelli hafa verið
bróður síra Jóns á Bægisá Olafssonar, en konu Sigfúsar segir hann hafa verið Hall-
dóru Egilsdóttur, systur síra Sigfúsar dómkirkjuprests á Hólum Egilssonar. Hér fer
höf. villur vegar. Kona Sigfúsar var Halldóra Guðmundsdóttir í Gröf á Höfðaströnd
Hallgrímssonar, en villan hjá höf. gæti stafað af því, að síra Sigfús Egilsson var kvænt-
ur Ólöfu dóttur Sigfúsar í Hvassafelli Ólafssonar. Ef Halldóra Egilsdóttir hefur verið
gift Sigfúsi í Hvassafelli hefur hún verið síðari kona hans og ekki móðir flestra barna
hans.
Nú kemur höf. að því, að móðir Þuríðar Jónsdóttur, konu Sigurðar í Sandhólum
Hallssonar, var Þórey Pálsdóttir bónda í Gerðum undir Fjöllum í Eyjafirði Jónssonar
handalausa Flóventssonar, en Páll hefur verið langlangömmubróðir höfundar. Þá rekur
hann einnig niðja Eiríks bróður Þóreyjar. Enginn vafi mun vera á því, að þetta er allt
frumskráð hjá höfundi, frá og með 9. blaði.
Á 16. blaði byrjar höf. á því að rekja ætt Arnfríðar Jónsdóttur konu Sigurðar Ja-
kobssonar, og síðan telur hann systkini hennar tvö, Þuríði og Pál, og nefnir síðan
niðja Arnfríðar og Páls, en Þuríður var hin fyrrnefnda kona Sigurðar í Sandhólum
Hallssonar. Höf. rekur nú ætt frá systkinum hennar fram yfir hálft 17. blað, en þá
tekur við ætt Ingibjargar Þorsteinsdóttur langömmu hans. Hana telur hann dóttur
Þorsteins bónda á Svertingsstöðum í Kaupangssveit, en móður hennar telur hann Kat-