Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Síða 139

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Síða 139
LÝSING O G SKÝRING Á L B S. 2574 — 2575 8vo 139 skráða ættartölu er hann rakti þenna legg. Hinsvegar mun flest annað, sem höf. skráir hér um móðurætt sína, tekið eflir skráðum heimildum, og eru í því nokkrar villur, sem gamlar ættartölur hafa, en nú á síðari tímum hafa verið leiðréttar. T. d. er faðir Þorbergs sýslumanns Bessasonar ranglega talinn Hrólfsson, og Margrét kona Sigurð- ar sýslumanns Finnbogasonar er talin dóttir Þorvarðar lögmanns Erlendssonar í stað Þorvarðar á Eiðum Bjarnasonar. Merkilegt er hinsvegar, að höf. hefur sagt, að Gutt- ormur faðir Lofts ríka hafi verið Ormsson, en einhver hefur síðar leiðrétt handritið og talið Guttorm Örnólfsson Jónssonar frá Stóra-Skógi. Hér vissi Guðmundur betur en sá, sem leiðrétti. 9. blaðið hefst á föðurætt höfundar. Er hér sjálfsagt enn um frumskráða ættartölu að ræða. Hann rekur þar alla leið upp til Jóns handalausa Flóventssonar, langlanglang- afa síns. Allt það, sem borið verður saman við manntalið 1703, kemur heim. Því er ekki rétt að rengja það, að Ingveldur Einarsdóttir, langamma höfundar, sem 1703 er 75 ára í Hleiðargarðskoti í Eyjafirði, hafi verið dóttir Einars í Kálfagerði Hjálmars- sonar úr Borgarfirði syðra Einarssonar. Hér skýrir höf. frá því, að þeir hafi verið bræður Jón í Hlíðarhaga, langlangafi höf., og Jón í Hleiðargarði, Hallgrímssynir, og rekur hann lítilsháttar ætt frá Jóni í Hleiðargarði, en á næstu blöðum, 10.—13. incl., frá Jóni í Hlíðarhaga forföður sínum. .Á 14. blaði rekur höf. börn Sigurðar bónda á Sandhólum í Eyjafirði Hallssonar. Hann byrjar á börnunum og gerir síðan grein fyrir föðurnum og ætt hans og þá konu hans, sem komin var af Jóni hreppstjóra í Stóradal í Eyjafirði Jónssyni og konu hans Herdísi Sigfúsdóttur bónda í Hvassafelli Ólafssonar. Allt ber þetta saman við mann- talið 1703, eftir því sem saman verður borið. Höf. segir Sigfús í Hvassafelli hafa verið bróður síra Jóns á Bægisá Olafssonar, en konu Sigfúsar segir hann hafa verið Hall- dóru Egilsdóttur, systur síra Sigfúsar dómkirkjuprests á Hólum Egilssonar. Hér fer höf. villur vegar. Kona Sigfúsar var Halldóra Guðmundsdóttir í Gröf á Höfðaströnd Hallgrímssonar, en villan hjá höf. gæti stafað af því, að síra Sigfús Egilsson var kvænt- ur Ólöfu dóttur Sigfúsar í Hvassafelli Ólafssonar. Ef Halldóra Egilsdóttir hefur verið gift Sigfúsi í Hvassafelli hefur hún verið síðari kona hans og ekki móðir flestra barna hans. Nú kemur höf. að því, að móðir Þuríðar Jónsdóttur, konu Sigurðar í Sandhólum Hallssonar, var Þórey Pálsdóttir bónda í Gerðum undir Fjöllum í Eyjafirði Jónssonar handalausa Flóventssonar, en Páll hefur verið langlangömmubróðir höfundar. Þá rekur hann einnig niðja Eiríks bróður Þóreyjar. Enginn vafi mun vera á því, að þetta er allt frumskráð hjá höfundi, frá og með 9. blaði. Á 16. blaði byrjar höf. á því að rekja ætt Arnfríðar Jónsdóttur konu Sigurðar Ja- kobssonar, og síðan telur hann systkini hennar tvö, Þuríði og Pál, og nefnir síðan niðja Arnfríðar og Páls, en Þuríður var hin fyrrnefnda kona Sigurðar í Sandhólum Hallssonar. Höf. rekur nú ætt frá systkinum hennar fram yfir hálft 17. blað, en þá tekur við ætt Ingibjargar Þorsteinsdóttur langömmu hans. Hana telur hann dóttur Þorsteins bónda á Svertingsstöðum í Kaupangssveit, en móður hennar telur hann Kat-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.