Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Blaðsíða 145
LÝSING O G SKÝRING Á L B S. 2574 — 2575 8vo
145
sonar og síra Skúla Illugasonar, barna Illuga bónda í Nesi í Höfðahverfi Jónssonar, og
hefur þar farið eftir skráðum heimildum.
Á 53. blaði rekur hann móðurætt Margrétar. Þar hefur hann einnig haft skrifaðar
ættartölur lil fyrirmyndar, en gerir þó þá skyssu að telja Ingiríði á Mælifelli, dóttur
síra Jóns í Miklagarði Þórðarsonar, konu síra Ara Guðmundssonar, en hún var síðari
kona síra Magnúsar á Mælifelli Jónssonar, móðir Ingunnar konu síra Ara.
Á miðri aftari síðu 53. blaðs víkur höf. að Jóni yngra syni Einars í Melgerði, en
hann hafði fallið úr er börn Einars voru talin nokkrum blöðum framar. Enn mun hafa
fallið úr hjá Guðmundi einn sonur Einars í Melgerði, ívar sá, sem 1703 er 50 ára
bóndi í Dæli í Svarfaðardal. Raunar er ekki vissa fyrir því, að Ivar sé sonur þessa
Einars, heldur nokkrar líkur, en vitneskja sú, sem menn nú hafa um börn Einars, bygg-
ist einmitt fyrst og fremst á ættatölum Guðmundar í Melgerði, og hafi honum verið
ókunnugt um eitt barn Einars vegna þess að það settist að í fjarlægri sveit og afkvæmi
þess varð ekki kunnugt honum, er þess ekki að vænta, að þess barns sé getið í öðrum
ættartölum. Jón sá Þórðarson, sem átti Vilborgu dóttur Einars í Melgerði, er líklega
sá, sem 1703 er vinnumaður hjá ívari í Dæli Einarssyni.
54. blað hefst með því, að höf. segist rekja nú á einum stað föður- og móðurætt
sína vegna þess, að hún sé ekki á einum stað skrifuð framar í kverinu. Svo kemur end-
urtekning á miklu af því, sem að framan er skrifað, þó nokkru fyllra, en hliðarlínur
eru ekki raktar. Hér er Jón á Urðum faðir Gottskálks á Helgastöðum talinn sonur síra
Vigfúsar (á að vera Sigfúsar) á Stað í Kinn Guðmundssonar, bróður síra Olafs á
Sauðanesi, og er það rétt.
Á 55. blaði tekur við ætt Þuríðar konu höfundar. Eru hér endurteknar hinar sömu
rangfærslur í ætt Sigfúsar í Hvassafelli Ölafssonar og konu hans, sem að framan getur.
Hér er Einar langafi Þuríðar talinn Helgason, en að framan var hann ýmist talinn
Þórðarson eða Helgason, og mun hið síðara vera rétt. Langlangamma Þuríðar var al-
nafna hennar, systir Gottskálks á Helgastöðum, og koma þar saman ættir höfundar og
konu hans.
Á 56. blaði rekur höf. niðja Einars Helgasonar, og hefur það fólk vafalaust verið
honum vel kunnugt. Síðar á sama blaði rekur hann niðja Guðmundar Jónssonar
Flóventssonar, langömmubróður síns. Þeir tengdust öðrum frændum höfundar og
kann hann því góð skil á þeim.
Á 57. blaði rekur hann ætt frá Aldísi Flóventsdóttur systur Jóns handalausa. Aldís
er enn á lífi 1703 hjá Flóvent bónda á Strjúgsá Pálssyni, syni sínum, 87 ára gömul.
Hún hefur verið nokkru yngri en Jón, sem varla mun vera fæddur eftir 1600, en þau
gætu þó vel verið alsystkini. Allt það, sem höf. segir um niðja Aldísar, staðfestir
manntalið 1703, svo langt sem það nær. Aldís var gift Páli bónda í Litladal Ólafssyni,
og eru niðjar þeirra taldir fram á mitt 58. blað, en þá taka við niðjar Sveins bróður
Páls og á 59. blaði niðjar Þorsteins bróður hans. Á 61. blaði koma svo niðjar Guðna,
fjórða bróðursins. Ættir þessar tvinnast öðrum, sem raktar eru framar í handritinu, og
mörgu skyldfólki höfundar.
Arbók Landsbókasajns 1950—5]
10