Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Qupperneq 147
LÝSING 0 G SKÝRING Á L B S. 2574 — 2575 8vo
147
honum og Hrólfi sterka. í framhaldi af ætt Bjargar rekur höf. ætt frá Siguröi lögréttu-
manni á Syðri-Bakka Hrólfssyni til Sigríðar Bjarnadóttur konu síra Jóns á Grund
Jónssonar og frá Skúla Hrólfssyni, bróður Sigurðar, til Jóns, Hallgríms og Guðrúnar
Gíslabarna, fólks, sem sjálfsagt hefur verið kunnugt höfundi og í nágrenni við hann.
Þá segir hann nokkuð frá síra Ara á Mælifelli Guðmundssyni, síra Jóni í Stærraárskógi
og Ingjaldi bræðrum hans, fram á 63. síðu, en á eftir því kemur ætt frá Þorbergi sýslu-
manni Hrólfssyni og síðan frá Arngrími Hrólfssyni. Þetta er illa sett fram hjá höfundi,
með því að Þorbergur Hrólfsson afahróðir Sigurðar, Skúla, Arngríms og síra Sæmundar
á Upsum er i hópi með þeim eins og hann væri einn bræðranna. Ekki er þó víst, að Guð-
mundur hafi sjálfur verið ruglaður í Hrólfsættinni.
Efst á aftari síðu 63. blaðs er rakin föðurætt Þorvaldar á Sökku Gunnlaugssonar.
Karlleggurinn er þar réttilega rakinn til Þorvaldar garnla í Hrísey Gunnlaugssonar, en
síðan slær út í fyrir höfundi, og hefur hann svo strikað yfir þann kafla og skrifað
utanmáls: „Þetta er röng ætt talin“.
Á 64. blaði er rakin ætt Sigurðar bónda á Möðruvöllum í Eyjafirði Eiríkssonar, og
síðar á sama blaði föðurætt barna Sigurðar á Stokkahlöðum Þorlákssonar. Þess er þar
getið, að föðurmóðir Sigurðar hafi verið Elín Jónsdóttir systir Einars í Melgerði og
Jóns í Hlíðarhaga, og er þetta í samræmi við það, sem segir á 47. blaði, en hér bætir
höf. því við, að Gísli Jónsson á Grund hafi verið hálfbróðir þeirra. Gísli er hinsvegar
framar talinn sonur Jóns í Hlíðarhaga, og það mun áreiðanlega vera rétt, en ekki veit
ég hvernig þetta hefur skolazt hjá höfundi. Hér getur höf. þess, að móðir Einars í
Melgerði og systkina hans hafi verið Þorgerður Árnadóttir bónda á Vatnsenda. Ætla
verður, að Guðmundur í Melgerði hafi, er hann skrifaði þessi blöð, haft hjá sér eða
fyrir sér annan heimildarmann en þá er hann skrifaði fyrr um Einar í Melgerði og
systkini hans. Síðari heimildarmaðurinn hafi farið rangt með ætt Gísla á Grund, en
hafi vitað nafn á móður systkinanna. Síðar verður vikið að því, að hún muni vera rétt
nefnd hér.
Á 65. blaði er rakin ætt Stefáns í Hrísgerði Jónssonar til Jóns á Steinsstöðum í
Oxnadal Einarssonar.
Þegar hér var komið sögu hefur höf. verið búinn að fá vitneskju um ætt Þorvaldar
Gunnlaugssonar fyrsta manns Guðrúnar Gunnarsdóttur og telur hann, svo sem rétt er,
bróður Egils Gunnlaugssonar, sem hann segir, að búið hafi á Æsustöðum, en 1703 býr
sá Egill á Bakka í Öxnadal. Annan bróður Þorvaldar telur hann síra Jón prest í Skaga-
firði, og er það einnig rétt. Höf. virðist alveg nýlega hafa fengið vitneskju þessa er
hann skrifar hana niður, með því að fáum blöðum framar ruglar hann saman Þorvaldi
þessum og Þorvaldi gamla í Hrísey alnafna hans, en hefur svo leiðrétt þetta aftur eins
og fyrr segir. Þá hefur höf. hér fyrst talið Gunnhildi konu Gríms í Teigi systur þessara
Gunnlaugssona, en síðar hefur hann leiðrétt þetta utanmáls og talið Gunnhildi réttilega
dóttur Bjargar Gunnlaugsdóttur. Aftast á 65. blaði er með annarri hendi en höfundar
gerð nánari grein fyrir síra Jóni Gunnlaugssyni.
Á 66. blaði er rakin föðurætt Hallgríms bónda í Nesi Jónssonar, og er það að mestu