Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Side 161

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Side 161
LÝSING 0 G SKÝRING Á L B S. 2574 — 2575 8vo 161 getið um Steinunni Hjaltadóttur, mann hennar og afkvæmi. Hér skal þess getið, að líklegt er, að Jón Jónsson, maður Steinunnar, sé sá, sem 1703 er 22 ára vinnumaður á Þormóðsstöðum í Sölfadal, og hefði hann þá verið hjá ekkju föðurbróður síns, sem þar býr þá með þremur kornungum börnum. Systur er Jón talinn hafa átt, sem Sólveig hét. Hún gæti verið sú, sem 1703 er vinnustúlka á Hrísum í Eyjafirði, og er aldur henn- ar ekki greindur, en þeir voru systrasynir Jón faðir Sólveigar og Þórður, sem 1703 býr á Hrísum. Á 127. blaði er rakin móðurætt Guðrúnar Sigurðardóttur konu Helga á Moldhaug- um Jónssonar og systra hennar. Ætt þeirra er rakin til Onnu Jónsdóttur, sem 1703 er 17 ára í Sigtúnum á Staðarbyggð hjá móður sinni Oddnýju Tómasdóttur, en bróðir Önnu var Tómas djákni á Munkaþverá 1703. Nú tekur við kafli um Munkaþverárpresta, stutt æviágrip þeirra, og lýkur kaflanum aftast á 135. blaði. Prestatal þetta hefst á síra Ólafi Einarssyni, sem 1703 býr á Syðra- Laugalandi. Ekki veit höfundur hverrar ættar síra Ólafur var, en hann var sonur síra Einars á Myrká Magnússonar og konu hans Helgu Jónsdóttur prentara í Núpufelli Jónssonar. Næstur síra Ólafi var síra Tómas, sem fyrr getur, og dó hann í stórubólu, barnlaus, en þá tók við síra Jón Sæmundsson, sem höf. segir fæddan í Fljótum vestur 1682 „hans foreldrar og forfeður meinast verið hafi Almúgafólk nefndarlaust búandi í sömu sveit“. Höf. segir Bjarna landlækni Pálsson hafa verið dótturson föðurbróður síra Jóns. Þetta er ekki rétt. Sigríður Ásmundsdóttir, móðir Bjarna landlæknis, var stjúpsystir síra Jóns. Ásmundur Halldórsson, faðir hennar, sem 1703 býr á Siglunesi, kvæntist Unu Guðmundsdóttur, móður síra Jóns, sem 1703 býr á Brúnastöðum í Fljót- um, ekkja eftir Sæmund Þorsteinsson í Stóruhrekku í Fljótum Eiríkssonar. Allt er þetta prestatal frumsamið af höfundi og sýnir orðalagið það. I lokin segir hann síra Gunnlaug Eiríksson hafa verið kallaðan til sóknarprests á Munkaþverá árið 1743 og þá hafa næstliðin 34 ár þjónað prestakallinu. Er þetta því skrifað 1777 eða 1778, enda kemur það heim við það, að síra Gunnlaugur er sagður fæddur 1714 og 63 ára, er þetta er skrifað. Aftast á 135. blaði hefst samskonar prestatal í Saurbæjarprestakalli og nær það fram á 145. blað. Það hefst á síra Birni Gíslasyni og því lýkur með síra Þorsteini Jónssyni. í ættartölu síra Björns er það rangt, að Hallur langafi hans liafi verið sonur Finnboga ábóta Einarssonar. Or prestatalinu hefur fallið niður síra Ólafur Árnason faðir Sigfúsar bónda í Hvassafelli, sem oft getur í handritinu. Á síra Ólafur að koma inn á milli síra Björns og síra Sigurðar Einarssonar. Hér er sagt, að faðir síra Sigurðar hafi verið Einar Hallsson, og er ekki ástæða til að rengja þá ættfærslu þótt ekki kunni menn nú skil á þeim Einari. Um síra Gunnlaug son síra Sigurðar, sem þjónaði Saurbæ næstur á eftir föður sínum, virðist höf. vel kunnugt. Þó þekkir hann ekki ætt miðkonu hans, Helgu Pálsdóttur, og er með annarri hendi en höf. skrifað utanmáls: „Erasmussonar Villads- sonar“. Höf. segir hér, að síra Þorsteinn Gunnlaugsson hafi átt 15 börn með konu sinni, Dómhildi Hjaltadóttur, og af þeim hafi 8 komizt upp. Síðan telur hann einungis Árbók Landsbókasafns 1950—51 JJ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.