Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Page 165

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Page 165
LÝSING O G SKÝRING Á L B S. 2574—2575 8vo 165 sem framar hefur verið bent á, á ættrakningum á 17. og 16. öld. I framhaldi af þessari ættartölu eru raktir nokkrir niðjar síra Jóns í Stærraárskógi Guðmundssonar. A 162. blaði hefst Lífssaga og œttartala hústrúr Guðríðar Gísladóttur biskupsfrúr í Skálholti. Er hér ekki um neitt frumlegt að ræða hjá höf., og verða þessum kafla engin skil gerð hér. Kaflinn nær fram á 166. blað og þá tekur við niðjatal frá síra Sveinbirni í Múla Þórðarsyni. Er þar farið eftir eldri skráðum heimildum, en heldur ruglingslega fram sett víða, einkum um ætt síra Hallgríms Péturssonar og systkina hans. Þá hefst aftast á 167. blaði ætt Þóreyjar Sigurðardóttur og systkina hennar. Er rakið frá forneskju og bera ættartölurnar alla þá galla, sem þær ættatölur hafa haft, sem höf. hefur skráð eftir. Nær þetta niður fremri síðu 172. blaðs og er fátt af því frumskráð. Þá tekur við ætt Stefáns biskups í Skálholti og nær út á fremri síðu 173. blaðs, en neðst á þeirri síðu er viðbót við fremri síðu 172. blaðs. Héðan frá og niður fremri síðu 181. blaðs eru ættatölur ýmsra, sem höf. hefur skrif- að upp eftir eldri heimildum. A aftari síðu 181. blaðs hefst ættartala Jóns bónda í Samkomugerði Jónssonar. Er þetta sjálfsagt frumskáð hjá höf. enda margt endurtekning á því, sem fyrr er sagt. Þó er hér skýrt frá því, sem ekki mun annarsstaðar að finna, að móðir Þórarins á Ljósa- vatni Jónssonar hafi verið Ingibjörg dóttir Guðmundar lögréttum. í Kristnesi Illuga- sonar pr. í Múla Guðmundssonar, og er það sennilega rétt, með því að nöfnin á fólki því, sem manntalið 1703 nefnir, og virðist af Þórarni komið, benda í þá ætt. A miðri fremri síðu 182. blaðs er rakin framætt síra Arna Þórarinssonar,' síðar biskups. Síra Arni er hér talinn prófastur í Odda, en við því brauði tók hann 1782. Árið 1784 kom hann út með biskupsvígslu, og er því þessi hluti handritsins skrifaður einhverntíma á árunum 1782—1784. Með annarri hendi en höfundar eru hér gerðar leiðréttingar og viðbætur neðanmáls. Á aftari síðu 182. blaðs hefst ættartala Þórunnar konu Stefáns bónda á Litla-Hóli í Eyjafirði Jónssonar, og nær hún niður næstu síðu. Þetta mun vera frumskráð hjá höfundi. Þá kemur endurtekning á því, sem framar segir um konu Magnúsar á Gils- bakka Hallssonar, en síðan er skýrt frá því hvar Símon faðir Þorsteins á Svertings- stöðum hafi búið, en Þorsteinn þessi, forfaðir höfundar, hafði ekki verið feðraður þar sem hans var getið framar í handritinu. Þá er sagt hver var kona Gríms lögréttumanns í Miklagarði Sigurðssonar, og skýrt er frá því hvernig dauða Gríms bar að höndum. Þegar hér er komið sögu segir höf. frá konu Halls lögréttumanns í Möðrufelli Bjarnasonar. Framar hafði hann getið síðari konu Halls, en hér getur hann hinnar fyrri. Ekki hefur höf. þó verið fróðari en svo, að hann telur hana hafa verið Steinunni Sigurðardóttur prests í Goðdölum Skúlasonar og veit ekki með vissu hvort hún var fyrri eða síðari kona. Þá segir hann, að hin konan hafi verið Guðrún Ólafsdóttir, systir síra Halls í Höfða. Síðar hefur höf. sjálfur leiðrétt þetta, strikað yfir: „hiet Steinunn dóttur sr. Sigurðar Skúlasonar (sic) frá Goðdölum“ og bætt inn í utanmáls og í línubil: „Hún hiet Herdís Jónsdóttir firsta kona Halls í Möðrufelli“. Leiðréttingin
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.