Réttur


Réttur - 01.01.1958, Side 92

Réttur - 01.01.1958, Side 92
92 RÍTTUB Og á árunum 1955—56 höfðu 99 af hundraði bændanna myndað samvinnubú, þar sem jörðin. verkfæri og dráttardýr voru sam- eiginleg eign og launin ein fóru eftir vinnuframlagi hvers og eins. Baráttan við fljótin hefur í aldaraðir kennt kínversku bænd- unum hvers virði samheldnin og samvinnan eru og jafnvel þótt fullir möguleikar væru á því fyrir hverja fjölskyldu að draga fram lífið á sínum litla jarðarskika, þá sýndi reynslan þeim fljót- lega, að einungis með samyrkju var hægt að bæta lífskjörin svo um munaði. Samvinnubúin juku ekki aðeins búvöruframleiðsluna um allt að fjórðung með hagkvæmri nýtingu vinnuaflsins og samhentari aðgerðum gegn duttlungum náttúrunnar, heldur bættu þau lífskjör hinnar áður svo örsnauðu bændaalþýðu og kaupmáttur hennar jókst. Landbúnaðurinn hefur boðið fram síaukið magn matvæla og hráefna til borganna, en iðnaður þeirra aftur á móti látið í té meir og meir af neyzluvörum. En nú voru samvinnubúin orðin of lítil. Þau voru eingöngu sniðin fyrir landbúnað — aðallega akuryrkju. Á árinu 1958 voru þau beinlínis orðin hindrun í vegi efnalegra og menningarlegra framfara. Hin litlu bú, sem aðeins samanstóðu af nokkrum hundr- uðum fjölskyldna, fengu ekki risið undir hinum fjölþættu nýju verkefnum, iðnaði, námugreftri, skólum og margskonar félags- legum ráðstöfunum, sem nauðsynlegar voru svo að vinnuafl væri nægilegt, ekki aðeins til að halda í horfinu, heldur einnig til að sækja fram á öllum sviðum. Samvinnubúin voru ekki nógu fjölmenn, höfðu ekki yfir nógu fjölhæfu vinnuafli að ráða né nægu fjármagni. Lausn þessara vandamála kom með myndun hinna fyrstu sameignarhverfa (kommúna). ■ Sameignarhverfið Spútnik í fylkinu Honan í Mið-Kína, sem haft hefur forystuna og þar sem náðst höfðu mjög eftirtektarverðir árangrar bæði í land- búnaði og iðnaði, voru um vorið mynduð fyrstu sameignarhverfin, þar á meðal hin fræga Weixing (Spútnik) hverfi. Það var stofnað við sameiningu 27 samvinnubúa með samtals 9369 fjölskyldum. í bráðabirgðalögum sameignarhverfisins segir svo í 1. grein: „Sameignarhverfið er grunneining í þjóðfélaginu, frjáls samtök hins vinnandi fólks undir forystu Kommúnistaflokksins og al- þýðustjórnarinnar. Hlutverk þess er að hafa á hendi stjórn allrar iðnaðar- og landbúnaðarframleiðslu, verzlunar-, menning- ar- og skólamála og stjórnarfarslegra málefna á umráðasvæði sínu.“ í 2. grein er svo kveðið á m. a.: „Markmið sameignarhveríisms er að treysta hið sósíalska skipulag og vinna af kappi að sköpun
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.