Réttur


Réttur - 01.01.1958, Page 134

Réttur - 01.01.1958, Page 134
134 RÉTTtlR munu sjálfir leggja mat á þau sjónarmið, er fram koma í yfir- lýsingunni, og ráða við s:g, hvernig snúast skuli við þeim. I. Höfuðeinkenni vorra tíma er breytingin frá auðvaldsskipulagi til sósíalisma, sem fram er að fara og hófst með októberbylting- unni miklu í Rússlandi. Nú þegar er svo komið, að meira en þriðj- ungur mannkynsins hefur kosið sér að feta braut sósíalismans til nýrrar tilveru, en það eru rúmlega 950 milljónir manna. Sá gífur- legi vöxtur, sem öfl sósíalismans hafa átt að fagna, hefur ýtt undir hraðvaxandi þjóðernishreyfingu gegn heimsveldisstefnunni, síðan styrjöldinni lauk. Á síðastliðnum 12 árum hefur ekki einungis Kínverska alþýðulýðveldið komið til sögunnar, heldur og alþýðu- veldin, Víetnam og Kórea, og hafa þar meira en 700 milljónir manna velt af sér oki nýlendukúgunarinnar og stofnsett sjálfstæð ríki í löndum sínum. Þjóðir í nýlendum og öðrum þeim löndum, sem enn eru ósjálfstæð og undirokuð, færast nú í aukana í þjóð- frelsisbaráttu sinni. Efling sósíalismans og þjóðfrelsishreyfingar- innar hefur orðið til þess að hraða um allan helming upplausn heimsvaldastefnunnar. Að því er meiri hluta mannkynsins varðar, hefur heimsvaldastefnan nú verið svipt þeim völdum, er hún hafði um eitt skeið. í heimalöndum heimsvaldastefnunnar er þjóðfélagið margklofið af stéttaandstæðum, svo og andstæðum þessara landa sín í milli, en verklýðsstéttin veitir yfirráðastefnu heimsveldanna og einokunarauðvaldsins æ öflugra viðnám, jafn- framt því er hún berst fyrir bættum lífskjörum, lýðréttindum, friði og sósíalisma. Samkeppni tveggja andstæðra þjóðskipulagskerfa, gangur hennar og útkoma, er það, sem ræður heimsþróuninni á vorum dögum. Á undanförnum fjörutíu árum hefur sósíalisminn sýnt það og sannað, að hann er þjóðfélagsskipulag miklu æðra auð- valdsskipulaginu. Þróunarhraði framleiðsluaflanna í sósíalistísku skipulagi hefur reynzt meiri en dæmi eru til í skipulagi auðvalds- ins og meiri en auðvaldsskipulag gæti komið til leiðar. Sósialism- in hefur tryggt hinum vinnandi fjölda síbatnandi iífskjör og menningarskilyrði. Framfarir Ráðstjórnarríkjanna í efnahagsmál- um, vísindum og tækni svo og árangur sá, er hin sósíalistísku ríkin hafa náð í framkvæmd sósíalismans, éru fullgildir vitnis- burðir um lífskraft sósíalismans. í löndum sósíalismans nýtur verklýðsfjöldinn raunverulegs frelsis og lýðréttinda. Alþýðuvöld tryggja stjórnmálaeiningu fjöidans, jafnræði og vináttu þjóða í milli og utanríkismálastefnu, sem að því beinist að varðveita frið um allan heim og styðja hinar undirokuðu þjóðir í frelsis-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.