Andvari - 01.01.1975, Blaðsíða 77
GUTTORMUR J. GUTTORMSSON:
TVEIR ÞÆTTIR
L Indíáninn John Ramsay
Þegar Björn Pétursson, sem síðar varð unítaratrúboði, og fjölskylda hans
settist að í bæjarstæðinu Sandy Bar (1876), var Indíáninn John Ramsay þar í
allgóöum bjálkakofa með konu sinni Betsy og þrem börnum þeirra, stúlku,
sem Mary hét, og tveirn drengjum, sem báðir voru yngri en Mary.
Margar Indíánafjölskyldur höfðu aðsetur í bæjarstæðinu og skóginum í
kring. Um þetta leyti settust og fleiri íslenzkar fjölskyldur að í bæjarstæðinu og
a öldunum fyrir austan Sandy Bar, Jrar á meðal Jón Björnsson, föðurbróðir
Gunnars B. Björnssonar í Minneapolis, og hinn mikli hlaupagarpur Hálfdán
Sigmundsson. Fyrsta veturinn, sem þetta íslenzka fólk bjó á þessum stöðvum,
kom bóluveikin og breiddist út um nýlenduna. Gerði hún mikinn usla á Sandy
Bar 0g þar í grenndinni, sérstaklega meðal Indíána, sem mátti segja að hryndu
niður. Ramsay missti konu sína og báða drengina. Stúlkan fékk veikina og bar
þess hryllilegar menjar, meðan hún lifði. Enga manneskju sá ég eins afskræmda
eftir veikina. Kona Ramsay og drengirnir eru jörðuð í garðinum á Sandy Bar.
Marmarahellan (legsteinninn), sem Ramsay setti á leiði konu sinnar, mun vera
sá fyrsti legsteinn, sem settur var á leiði í Norður-Nýja-íslandi. Stendur hann
enn stöðugur. En girðinguna um leiðið endurnýjaði Trausti Vigfússon (tengda-
sonur síra Odds Gíslasonar) sakir draums, er hann hafði dreymt. Er draumur
sá prentaður í vikublaðinu Heimskringlu. Tólf eða þrettán bóludauðir Indíánar
voru bundnir með treflum (sashes) á flatsleÖa og dregnir norður fyrir bæjarstæÖiÖ
°g jarðaðir þar í einni gröf. (Sést haugurinn enn og er nú skógi vaxinn.) Tveir
Islendingar hjálpuðu við Jrað verk: Jón Björnsson og Hálfdán Sigmundsson.
Eftir þetta fluttist Ramsay með Maríu upp að íslendingafljóti. Það sem
J>egar er sagt skeði fyrir mitt minni. Þegar ég nran fyrst eftir Ramsay, var hann
giftur forkunnarfríðri Indíánakonu, sem Elín hét. Og fyrst man ég að hafa séð
hann einn sælan sólskinsdag, er þau hjónin með barn sitt á fyrsta ári komu
norðan fljót á nýrri bleikri barkarkænu og lögðu að landi hér á Víðivöllum.