Andvari - 01.01.1975, Blaðsíða 72
70
BJÖRN JÓNSSON
ANDVARI
vóru 8 börn ung í för þeirra, og sá ekkert
á þeim. Því vil ég ráða þeirn, sem hingað
kunna að vilja fara, að vera lielclur í
smærri en stærri flokkum, enda þótt það
yrði lítið eitt dýrara.
Eftir að hingað var komið, fóru menn
að dreifast út um nýlenduna og nema
lönd og byggja á þeim. Sumir fóru norður
að Islendingafljóti og numdu lönd upp
með því, nokkrir á eyjunni. Þó er hér fjöl-
byggðast í svðsta partinum, flest vatns-
lot eru tekin, og sums staðar er byggð-
in komin 6 mílur enskar upp í landið.
Hver maður, sem er 20 ára, fær I lot,
[sem] er 160 ekrur, er því hvert Vi míla
ensk á hvern kant.8
Litlu eftir að við komum hingað, fór að
brydda á veiki, er menn ekki þekktu í
fyrstu, og vóru því til allrar ógæfu ekki
gjörðar neinar tilraunir til að hindra út-
breiðslu sýkinnar fyrr en í ótíma, því
seinna varð það víst, að það var hin háska-
lega bólusýki. Um afleiðingar plágu þess-
arar skrifaði ég móður minni í vetur, en
ég skal geta þess, að þar er ekki rétt sagt
frá tölu þeirra dánu, því eftir að allar
skýrslur vóru saman komnar, reyndist, að
nær 90 höfðu dáið af bólunni, flest ungt
og óbólusett fólk. Þeir, sem nýlega vóru
bólusettir, veiktust ekki. Þeir, sem cin-
hvern tíma höfðu verið bólusettir, veikt-
ust sumir, en engir dóu, svo ég viti. llús
mitt varðist lengi. Þó kom veikin þangað
á endanum, og missti ég Jón son minn
úr hcnni.0 Hin börn mín veiktust ekki
til muna, því þau vóru bólusett, og ekki
við hjónin heldur. Ekki hefur annað dáið
af Keldhverfingum, er hingað fóru, cn
þessi áðurnefndu tvö börn mín, en vesæl-
ar hafa konur Asmundanna verið.10
Eftir að bólunni fór að létta, fór nýtt líf
að færast í þá, sem eftir lifðu. Vóru fundir
haldnir, nefndir kosnar til að sernja lög
fyrir nýlenduna, og vórum við hér 5 í
nefndinni og aðrir 5 í nyrðri hlutanum.
Samdi ég fyrsta uppkast til frumvarps,
sem síðan var rætt af báðum nefndunum,
og eftir nokkrar breytingar og viðbætur,
sem það fékk þar, samþykkt á einum aðal-
fundi 5. febrúar í vetur. Lagagreinar þess-
ar hafa verið sendar Norðanfara og eru
ykkur því líklega þegar kunnar. 14. febrú-
ar fóru fram almennar nefndakosningar i
öllum byggðunum samkvæmt frumvarp-
inu. Hér í Víðinesbyggð urðu fyrir kosn-
ingu þessir: Friðjón Friðriksson, Skafti
Arason, Eyjólfur Eyjólfsson frá Múla-
sýslu, Kristján Jónsson frá Héðinshöfða
og ég. Til byggðarstjóra var ég aftur kos-
inn, en Friðjón til vara.
Flestir nefndarmenn í hinurn byggð-
unum eru ykkur ókunnugir, og ætla ég
því aðeins að geta byggðarstjóranna. 1
Árnesbyggð er það Bjarni Bjarnason Skag-
firðingur. Elann er maður fullt sextugur,
en ungur í anda og hinn frjálslyndasti.
I Fljótsbyggð Jóhann Olafsson Briem, góð-
kunnugur maður. í Mikley [var] Jón
Bergvinsson fyrst kosinn, en hann flutti
úr eyjunni í vor, og kom því varamaður í
hans stað, Halldór Friðriksson af Vestur-
landinu. Þingráðsstjóri okkar er Sigtrygg-
ur Jónasson. Hann er góður drengur að
mínu áliti, þó sumir kunni að segja
annað, ekki að tala um skarpleika hans.11
Um sama leyti og lögin vóru samþykkt,
var myndað hlutafélag til að koma hér
upp prentsmiðju. Húsið er nú byggt og
pressa og pappír fengin fyrir nokkru, en
þegar til starfa átti að taka, vantaði eitt
dálítið stykki í pressuna, sem skrifað var
eftir, en sem enn er ókomið, en vonazt
nú daglega eftir, og á þá strax að byrja á
blaði, sem heita skal Framfari.12 I stjórn-
arnefnd prentsmiðjunnar cru þcir Sig-
tryggur Jónasson, Jóhann Briem og Frið-
jón.
Margt hcfir verið talað um presta og