Andvari - 01.01.1975, Blaðsíða 62
60
ÁRNI GUÐMUNDSEN
ANUVAW
legt, skíta þeir Ameríku út. Ég veit annars
ekki, hvað úr þessum manni verður í vet-
ur, eins og fleirum líkt stöddum, þótt þeir
geti lifað af vinnu sinni hér í sumar, því á
veturna er hér í bænum engin eða lítil
vinna, en þessir garmar kornast ekkert
burt; það fer annars allt einhvern veginn.
Það er satt, ég gleymdi að segja þér,
að Páll Þorláksson fór til Qvebeck á móti
fólki sínu, og var hann í sömu lestinni,
sem tjónið varð á; hvorki hann né neitt
af hans fólki meiddist. Ég held ég fari
nú að hætta þessu og bið þig að fyrirgefa
flýtirinn. Berðu drengjunum kveðju mína,
ég nenni ekki að skrifa þeim.
Eiskulega mamrna.
Ég iegg hér innaní hálfgjörða skrípa-
mynd af mér, eftir því sem mér sýnist,
og skaltu láta mig vita, hvort þér ekki
sýnist hið sama. Ég ætla mér að senda
þér mynd á hverju ári, sem ég dvei hér,
og geturðu þá séð, hversu mikið ég eldist
á ári; hina myndina sendi ég hjónaleys-
unum Hróa og Kristínu og bið þig ráð-
stafa henni. Ekki nenni ég nú að skrifa
þér neinar fréttir, þótt ég gæti tínt eitt-
hvað til. Þér þykir hcldur ekkert gaman að
því. Þér er óhætt að ráðleggja öllum
duglegum stúlkum að koma hingað. All-
ar, sem ennþá eru komnar, eru komnar í
góða vist hér í bænurn, og eru hér cava-
lerer og dömur á hverjum degi og koma
og biðja um stúlkur, en þá segjurn við:
they are all gone (þær eru allar útgengn-
ar). Þær líka hér vel flestar, þótt þær ekki
hafi vanizt miklu heima. Setta Jónsdóttir
er hér í fínu ameríkönsku húsi rétt á móti
okkur, og er fólkið mjög ánægt með hana.
Ég kveð ykkur nú bæði beztu kveðju
óskandi ykkur alls hins bezta.
Ykkar elskandi sonur
Arni Guðmundsen.
Toggi: sennilega Þorgrímur bróðir bréfritara,
kennari í Reykjavík og leiðsögumaður. - Thor-
grímsons-hjónin: Guðmundur Thorgrímsen
verzlunarstjóri á Eyrarbakka og Sylvía Níelsdótt-
ir kona hans. — Couducteuren: umsjónarmaður-
inn á lestinni. - telegraph-depeschin: símskeytið.
- Locomotivið: gufuvagninn, sem dregur vagna-
röðina. - Skáldið Stephan G. Stephansson lenti
í þessu járnbrautarslysi, og 'hefur hann skýrt frá
því í Ferðasögu frá Islandi til Ameríku árið
1873, prentaðri í Bréfum og ritgerðum IV,
131-34. - skinnerne: teinana. - lngeneurínn:
lestarstjórinn. - Fyrhöderen: kyndarinn.
Milwaukee, 5. október 1873
Elskulega mamma.
Nú er mál komið að fara að skrifa heim
til þess að ná í síðustu gufuskipsferð, og
þótt ég ekkert bréf hafi fengið frá ykkur
með síðustu ferð, má ég til að skrifa þér
nokkrar línur. En hvað á ég nú að skrifa,
mér finnst ég ekkert hafa, og er það svo
alltaf, þegar ég fer að skrifa bréf.
Af mér er allt bærilegt að frétta, frísk-
ur hefi ég verið að mestu og betur en
flestir landar, því margir hafa verið lasnir
i sumar, og er nýdáinn einn gamall Norð-
lendingur, Þórður Árnason að nafni, hafði
hann legið lengi ásamt syni hans, sem
liggur á spítala hér í bænum, var hann
(nl. Þórður sál.) búinn að eyða mestu af
þeim peningum, sem hann kom með, svo
við landar hér skutum saman til þess að
koma honum í jörðina, og hafði ég nóg
að gjöra í heilan dag að útvega allt til
þess, og hjálpaði mér þó norskur prestur
vel að framkvæma þetta, en það þarf víða
að fara til þess að koma einum skrokk í
í jörðina. Legkaup kostaði 10 dollara.
Ekkja lifir eftir með 5 börn, og lítur ekki
efnilega út fyrir henni; fleiri eiga hér líka
bágt af þeim, sem komu í sumar, og er
þar af Þorgeir einn, hann og konan hafa